Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Myrti börnin sín eftir að hafa fundið klám í síma eiginmannsins

Skaut einnig móður sína til bana

Hailey Dempsey með barn sitt
Hailey Dempsey með barn sitt

Kona í Flórída í Banda­ríkjunum skaut móður sína og tvö barna sinna til bana áður en hún svipti sig lífi. Lögregla telur að atburða­rásin hafi átt sér stað í kjölfar harðra deilna konunnar og eigin­manns hennar vegna klámefnis sem hún fann í síma hans.

Lögreglan í Plant City greindi frá niður­stöðum rann­sóknar málsins á blaðamanna­fundi á fimmtudag. Atvikið átti sér stað 3. maí síðastliðinn á Tampa Bay-svæðinu.

Að sögn Richards Mills, lögreglu­stjóra í Plant City, skaut Hailey Dempsey fyrst móður sína, Valerie DeBoe, til bana á heimili fjöl­skyldunnar. Dempsey yfirgaf síðan heimilið ásamt þremur ungum dætrum sínum.

Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að Dempsey skaut fjögurra mánaða gamla dóttur sína og fjögurra ára dóttur sína til bana. Hún skaut einnig að tveggja ára dóttur sinni en skotið geigaði og barnið lifði af. Skömmu síðar skaut Dempsey sjálfa sig til bana.

Mills sagði að lögregla hefði þrívegis verið kölluð að heimili fjöl­skyldunnar dagana fyrir harm­leikinn.

Tveimur dögum áður, 1. maí, höfðu Dempsey og eigin­maður hennar, Jay, lent í hörðum orða­skiptum eftir að hún fann klám í farsíma hans.

Lögreglu­stjórinn sagði ekkert benda til þess að um fram­hjáhald hefði verið að ræða heldur hefðu deilurnar snúist um klámefnið sjálft. Að mati rann­sakenda virðist rifrildið hafa verið upphafið að þeirri atburðarás sem lauk með fjórum dauðsföllum.

Rannsókn lögreglu á málinu er nú lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs