1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

4
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

5
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

6
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

7
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

8
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

9
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

10
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Til baka

Myrti samnemanda sinn í beinni útsendingu

Skólasamfélagið er í molum eftir árásina

Skotárás filipseyjum
Lögreglumenn við störf í skólanum
Mynd: ROEL PARRENO / AFP

Nemandi á Filippseyjum skaut skólafélaga sinn til bana fyrr í dagur áður en hann svipti sig lífi. Árásarmaðurinn sýndi frá ódæðinu í beinni útsendingu á samfélagsmiðlum.

Skotárásin átti sér stað í Ateneo de Zamboanga University, kaþólskum einkaskóla á vesturhluta Mindanao. Þetta er önnur skotárásin í filippseyskum skóla á aðeins tveimur mánuðum.

Shella Chang, talskona lögreglunnar á svæðinu, sagði í samtali við AFP að árásarmaðurinn hefði farið inn í kennslustofu þar sem fórnarlambið var statt og skotið það. Að því loknu hefði hann farið upp á fimmtu hæð skólabyggingarinnar og skotið sjálfan sig.

Victor Remulla, innanríkisráðherra Filippseyja, staðfesti að árásarmaðurinn hefði sýnt frá árásinni í beinni útsendingu á samfélagsmiðlum. Facebook-reikningi hans hefur síðan verið lokað.

Myndband úr útsendingunni hefur verið birt í filippseyskum fjölmiðlum. Þar sést skotvopn á ferð eftir gangi skólans áður en því er beint inn í kennslustofu og skotið. Í kjölfarið sjást nemendur öskra og flýja úr kennslustofunni.

Ekki liggur fyrir hversu margir særðust í árásinni og lögregla hefur enn ekki gefið upp aldur árásarmannsins eða fórnarlambsins.

Lögregla rannsakar nú ástæður árásarinnar, hvaðan skotvopnið kom og hver væri skráður eigandi þess. Þá er einnig til rannsóknar hvernig árásarmanninum tókst að koma vopninu inn á skólalóðina.

Faðir Guillrey Andal, forseti Ateneo de Zamboanga, staðfesti að tveir hefðu látist og sagði skólasamfélagið harmi slegið. Skólinn ynni náið með lögreglu að rannsókn málsins og lögð væri áhersla á að hafa fyrst samband við aðstandendur hinna látnu.

Skotárásir í skólum eru sjaldgæfar á Filippseyjum. Í júní létust þó þrír unglingar og tuttugu særðust í árás á skóla í miðhluta landsins. Í kjölfar þeirrar árásar efndu fjölmargir skólar til æfinga vegna mögulegra skotárása. Ateneo de Zamboanga hélt slíka æfingu í síðasta mánuði.

Lögleg byssueign er háð ströngum reglum á Filippseyjum en umfangsmikill svartur markaður með skotvopn er engu að síður til staðar í landinu.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg

Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu