1
Fólk

Íslenskur kastali til sölu

2
Fólk

Átta fæðutegundir sem vinna gegn hárlosi

3
Innlent

Íslendingur hótaði ítrekað að myrða lögreglumenn og börn þeirra

4
Minning

Þorsteinn Ólafsson er fallinn frá

5
Innlent

Eftirlýstur á Íslandi í rúma fjóra mánuði en finnst ekki

6
Innlent

Stefán Einar leiðréttur

7
Innlent

„Þessi manneskja styður tilraunastarfsemi á börnum“

8
Landið

Séra Sveinbjörg fer á Vestfirði en Hilmir fer austur

9
Pólitík

Sakar Samfylkinguna um hræsni

10
Innlent

Tryggvi Gíslason er látinn

Til baka

Nýtt líf Jóa Fel: Ást, einbýli og upprisa

Rís upp úr gjaldþroti með nýtt einbýli, trúlofun og nýjan rekstur.

Skjámynd 2025-05-06 175728
Nýtt líf Jóa FelHann er kominn aftur og nú með lifandi uppskriftabók þar sem próteinduftið á sér einnig samastað.
Mynd: Jói Fel / eldabaka.is

Athafnamaðurinn og bakarinn Jói Fel er risinn aftur eftir gjaldþrot og fleiri raunir. Hann er nýtrúlofaður og fluttur til Hveragerðis í „mjög töff einbýlishús“, eins og sjónvarpskonan Vala Matt lýsir því, en hún birtir í kvöld viðtal við hann á Stöð 2.

Jói Fel varð gjaldþrota árið 2023. Árið 2020 hafði bakarískeðja hans farið í gjaldþrot, eftir beiðni Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Síðar sagðist hann hafa orðið fyrir létti við gjaldþrotið. „Því miður voru skuldir orðnar of háar, launin of há, kostnaðurinn of hár,“ sagði hann.

Heimili hans, einbýli við Markarflöt í Garðabæ, var sett á uppboð skömmu síðar, en hann hafði flutt þangað árið áður og sýnt í Smartlandinu.

Eftir gjaldþrot bakarísrekstursins reyndi Jói að kaupa aftur eignirnar, en það var keppinauturinn, Bakarameistarinn, sem keypti eignirnar úr þrotabúinu. Sam­tals feng­ust 117 millj­ón­ir upp í tæp­lega 201 millj­ónar kröfur sem lýst var í búið

Árið 2022 fór kærasta Jóa með hann í skyndi á bráðamótttöku þar sem hann gekkst undir hjartaþræðingu. Hann vann þá að opnun veitingastaðarins Felino og sagðist vera kominn á nýjan stað í lífinu. Á endanum lokaði Felino árið 2024, að sögn Jóa vegna hækkandi hráefnisverðs þótt það væri „troðið út úr dyrum“, eins og hann lýsti því. Eftir það stefndi Jói að opnun „lifandi uppskriftabókar“.

Jói Fel skildi árið 2017 eftir 20 ára hjónaband. Fyrrverandi eiginkona hans lýsti því síðar í viðtali hvernig hún notaði hugvíkkandi efni til að komast yfir skilnaðinn. „Það að stíga samtímis út úr hjónabandi sínu og einnig út úr fyrirtækinu sínu, sem hafði verið ástríða manns og lifibrauð í þetta langan tíma, var bara mjög stórt,“ sagði hún.

Nú eru nýjustu áform Jóa Fel orðin að veruleika. Lifandi uppskriftabók á netinu hefur litið dagsins ljós, eldabaka.is. Þar birtir hann uppskriftir og myndbönd af sér við matreiðslu og sparar ekki að flagga einkennismerki sínu, upphandleggsvöðvunum, samhliða ráðleggingum um heilsusamlegt fæði.

Hann bað kærustu sinnar, Kristínar Evu Sveinsdóttur, á Miami-ströndinni í Flórída í Bandaríkjunum í ágúst síðastliðnum. Það er einmitt Kristín Eva sem er skráður eigandi einkahlutafélagsins sem heldur utan um nýjan rekstur Jóa Fel.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Stefán Einar leiðréttur
Innlent

Stefán Einar leiðréttur

„Algjör óþarfi að reyna að snúa út úr“
Reka 20 manns en högnuðust um tæpa níu milljarða
Peningar

Reka 20 manns en högnuðust um tæpa níu milljarða

Eftirlýstur á Íslandi í rúma fjóra mánuði en finnst ekki
Innlent

Eftirlýstur á Íslandi í rúma fjóra mánuði en finnst ekki

Átta fæðutegundir sem vinna gegn hárlosi
Fólk

Átta fæðutegundir sem vinna gegn hárlosi

Séra Sveinbjörg fer á Vestfirði en Hilmir fer austur
Landið

Séra Sveinbjörg fer á Vestfirði en Hilmir fer austur

Khan ákærður fyrir að nauðga fótafyrirsætum
Heimur

Khan ákærður fyrir að nauðga fótafyrirsætum

Tilkynning, leiðréttingar og andsvar vegna aðalfundar Sósíalistaflokks Íslands
Skoðun

Jón Ferdínand Estherarson

Tilkynning, leiðréttingar og andsvar vegna aðalfundar Sósíalistaflokks Íslands

Íslenskir trumpistar eygja byltingu
Innlent

Íslenskir trumpistar eygja byltingu

Þorsteinn Ólafsson er fallinn frá
Minning

Þorsteinn Ólafsson er fallinn frá

Brjálað afmælisstuð hjá Emmsjé Gauta
Myndband
Menning

Brjálað afmælisstuð hjá Emmsjé Gauta

Óánægja með biðlista og kerfið í heild sinni
Innlent

Óánægja með biðlista og kerfið í heild sinni

Sakar Samfylkinguna um hræsni
Pólitík

Sakar Samfylkinguna um hræsni

Segja andúð í garð ferðamanna á Tenerife hafa aukist
Heimur

Segja andúð í garð ferðamanna á Tenerife hafa aukist

Fólk

Átta fæðutegundir sem vinna gegn hárlosi
Fólk

Átta fæðutegundir sem vinna gegn hárlosi

Húðlæknir leggur áherslu á að fólk leiti lausna í eldhúsinu
Selja áhugavert en óklárað hús í Garðabæ
Myndir
Fólk

Selja áhugavert en óklárað hús í Garðabæ

Íslenskur kastali til sölu
Myndir
Fólk

Íslenskur kastali til sölu

Landsliðsmaður Íslands er „Næs“
Fólk

Landsliðsmaður Íslands er „Næs“

Sigurbjörn Bárðarson stofnar fyrirtæki
Fólk

Sigurbjörn Bárðarson stofnar fyrirtæki

Gervigreindin umbyltir húðumhirðu
Fólk

Gervigreindin umbyltir húðumhirðu

Loka auglýsingu