1
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

4
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

5
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

6
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

7
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

8
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

9
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

10
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Til baka

Óánægja með biðlista og kerfið í heild sinni

Á tímabili biðu 900 börn eftir aðstoð og allt að þriggja ára bið.

Talmeinfræði
Mynd: Unsplash/Colin + Meg

Upplifun fólks á talmeinaþjónustu fyrir börn hefur verið mjög tvískipt. Fólk er almennt ánægt með gæði þjónustunnar þegar hún loksins fæst, en það hefur ríkt gríðarleg óánægja með biðlista og kerfið í heild sinni. Á tímabili biðu 900 börn eftir aðstoð og allt að þriggja ára bið.

Heilbrigðisráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið birtu nýja sameiginlega aðgerðaáætlun um bætta talmeinaþjónustu við börn til ársins 2028. Markmiðið er að tryggja börnum hraðari, einfaldari og markvissari aðgang að talmeinaþjónustu sem miðast við þarfir hvers barns og er veitt sem mest í nærumhverfi þess.

Börn eiga ekki að þurfa að bíða

„Stytting biðlista barna er áherslumál ríkisstjórnarinnar. Börn eiga ekki að þurfa að bíða eftir viðeigandi stuðningi. Með þessari áætlun er stigið mikilvægt skref í átt að aðgengilegri, samræmdari og skilvirkari talmeinaþjónustu sem byggir á hagsmunum barnsins og farsæld þess,“ segir Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra í tilkynningu frá stjórnvöldum.

Meðal aðgerða er að fjölga talmeinafræðingum í heilsugæsluþjónustu til að styðja við ung- og smábarnavernd, efla þjónustu í nærumhverfi barna og tryggja að sérfræðiþjónusta sé aðgengileg þegar hennar er þörf.

Snemmtæk íhlutun

Áætlunin tekur einnig á mönnunarvanda í faginu með því að leggja grunn að nýrri námsleið fyrir aðstoðarfólk talmeinafræðinga sem getur stutt við snemmtæka íhlutun og þjónustu í leik- og grunnskólum undir handleiðslu talmeinafræðinga.

Jafnframt er gert ráð fyrir innleiðingu á miðlægum biðlista eftir sérfræðiþjónustu talmeinafræðinga til að bæta yfirsýn yfir raunverulega þjónustuþörf og stytta biðtíma. Þá verður krafa um læknatilvísanir afnumin þannig að aðrir sérfræðingar sem koma að þjónustu barns geti sótt um sérfræðiþjónustu fyrir þess hönd.

Aðgerðaáætlunin nær til áranna 2026–2028 og verður framkvæmd í samstarfi ríkis, sveitarfélaga og helstu hagsmunaaðila á sviði talmeinaþjónustu og farsældar barna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“
Fólk

„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“

Valur Gunnarsson veltir fyrir sér klíkuskap landans
Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum
Heimur

Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu