1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

4
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

5
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

6
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

7
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

8
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

9
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

10
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Til baka

Ógnar fólki í Fíladelfíu með ógeðfellda grímu á smettinu

Spurði konu hvort hún væri „tilbúin að deyja“

chucky
Þorparinn holdi klæddur

Lögreglan í Fíladelfíu í Bandaríkjunum leitar nú að ungum manni sem grunaður er um að hafa ógnað og áreitt vegfarendur í miðborginni. Maðurinn bar grímu sem minnir á hryllingsmyndapersónuna Chucky þegar atvikin áttu sér stað.

Jason Smith, lögregluforingi í Fíladelfíu, segir manninn hafa veist að nokkrum einstaklingum í Center City-hverfinu. Atvikin áttu sér stað á um 20 mínútna tímabili.

Eitt atvikanna náðist á eftirlitsmyndavél. Þar sést maðurinn elta konu sem var úti að hlaupa snemma morguns. Hann veitti henni eftirför áður en hann gekk að henni og er sagður hafa spurt hana hvort hún væri „tilbúin að deyja“.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu færði maðurinn jafnframt aðra höndina aftur fyrir bak með þeim hætti að konan taldi að hann kynni að vera með vopn.

Konan kallaði eftir aðstoð og hörfaði undan manninum. Við það hlaut hún minniháttar meiðsl á fæti. Grímuklæddi maðurinn flúði af vettvangi eftir að hún fór að öskra.

Konan er sú eina sem hefur tilkynnt atvik formlega til lögreglu en samkvæmt Smith er talið að maðurinn hafi einnig veist að eða reynt að hræða að minnsta kosti sex aðra vegfarendur. Bæði karlar og konur eru talin hafa orðið fyrir barðinu á honum.

Á upptökum sést maðurinn á einum tímapunkti draga grímuna niður þannig að hluti andlits hans verður sýnilegur. Lögregla lýsir honum sem grönnum svörtum karlmanni, um 173 sentímetra á hæð og á aldrinum 16 til 20 ára.

Lögregla vinnur nú að því að bera kennsl á manninn og hafa uppi á honum. Verði hann handtekinn gæti hann meðal annars átt yfir höfði sér ákærur vegna hótana, áreitni, líkamsárásar og ógnunar.

Watch full video on TMZ
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu