1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

4
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

5
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

6
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

7
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

8
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

9
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

10
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Til baka

Oprah Winfrey lokar elítuskóla sínum í Suður-Afríku

Neita því að skóla Opruh Winfrey sé lokað vegna vanstjórnunar

Oprah Winfrey
Oprah Winfrey ásamt nemendum úr skóla hennarUmdeildur og glæsilegur heimavistarskóli kveður
Mynd: Instagram

Oprah Winfrey Leadership Academy for Girls (OWLAG), heimavistarskóli fyrir stúlkur sem bandaríski sjónvarpsþáttastjórnandinn Oprah Winfrey stofnaði í Suður-Afríku fyrir tæpum 20 árum, mun hætta starfsemi við lok skólaársins 2027.

Í yfirlýsingu frá Winfrey kemur fram að skólasvæðið sem er staðsett nálægt Jóhannesarborg verði framselt staðbundnum menntayfirvöldum, í samræmi við upphaflegt samkomulag. Þeim nemendum sem eiga enn eftir að ljúka námi þegar skólinn lokar verða tryggðir fullir námsstyrkir til að ljúka námi annars staðar.

Framtíðarsýnin breytist en verkefninu lýkur ekki

Skólinn, sem staðsettur er í þorpinu Henley-on-Klip, var opnaður árið 2007 eftir að Winfrey fundaði með Nelson Mandela, fyrrverandi forseta Suður-Afríku, árið 2002. Markmið skólans hefur ávallt verið að veita stúlkum úr fátækari hverfum samfélagsins tækifæri til náms og hafa rúmlega 1.000 stúlkur útskrifast þaðan. Í dag stunda 281 nemandi nám við skólann.

„Draumurinn var aldrei sá eini að byggja skóla,“ sagði Winfrey, sem er 72 ára, í yfirlýsingunni. „Hann snerist um að fjárfesta í möguleikum ungra kvenna. Því hlutverki lýkur ekki með einu skólahúsnæði.“

Stofnun Opruh Winfrey stefnir að því að halda menntaverkefninu áfram með því að fjármagna sérstaka námsstyrki. Þeir munu gera stúlkum sem koma úr lægri stéttum samfélagsins kleift að sækja aðra skóla víðs vegar um landið.

Neita sögusögnum um vanstjórnun

Margt hefur gengið á við rekstur skólans, sem kostaði um 40 milljónir Bandaríkjadala í byggingu. Stuttu eftir að skólinn opnaði komu fram ásakanir á hendur fyrrverandi starfsmanni um misnotkun, en viðkomandi var síðar sýknaður af öllum ákærum. Þá gagnrýndu sumir álitsgjafar skólann á sínum tíma fyrir óhóflegan lúxus, svo sem jógastúdíó og snyrtistofu, og sögðu að fjármununum hefði verið betur eytt í breiðari stuðning við fleiri nemendur.

Eftir að Oprah lýsti því að skólanum yrði lokað fóru sögusagnir af stað um að ákvörðunin tengdist vanstjórnun. Almannatengill á vegum stofnunarinnar hefur alfarið vísað því á bug og áréttað að lokunin sé liður í upphaflegu skipulagi.

Ekki liggur fyrir hvað verður um fasteignirnar þegar menntamálaráðuneyti Gauteng-héraðs tekur við þeim, en fulltrúar ráðuneytisins segjast skuldbundnir því að varðveita og efla þá arfleifð sem skólinn skilur eftir sig.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun
Innlent

Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu