
Frétt sem Mannlíf skrifaði í gær vakti heldur betur athygli en um er að ræða ákærufrétt af Íslendingi sem hafði hótað að drepa lögreglumenn og börn þeirra. Maðurinn var ekki nafngreindur í fréttinni en hótaði fólkinu á ensku.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, vakti athygli á þessu og setti „hugsandi broskall“ með. Viðbrögð stuðningsmanna voru fyrirsjáanleg og var sá ákærði meðal annars kallaður erlendur hryðjuverkamaður og fleira í þeim dúr.
Fólkið sem skrifaði athugasemd og Sigmundur dró þó heldur betur rangar ályktanir en hinn ákærði heitir einu íslenskasta nafni sem til er, getur rakið ættir sínar á Íslandi til baka í margar kynslóðir og er meira að segja hluti af einni þekktustu fjölskyldu Íslands, bæði á 20. og 21. öldinni.
Aðalgleðitíðindin eru þó þau að forsætisráðherrandi fyrrverandi les Mannlíf þrátt fyrir að hann hafi ekki svarað fyrirspurnum eða símtölum frá Mannlífi árum saman ...
