Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Perez Hilton fluttur á sjúkrahús eftir sjálfskaða í beinni útsendingu

Slúður­bloggarinn mundaði hníf í beinni útsendingu á TikTok

Perez Hilton
Perez Hilton Hilton hefur glímt við erfið veik­indi und­an­farin ár. Mynd: ETHAN MILLER / GETTY IMAGES VIA AFP

Slúður­bloggarinn og fjölmiðla­maðurinn Perez Hilton hefur verið lagður inn á sjúkrahús eftir að lögregla var kölluð að heimili hans í Miami í kjölfar tilkynninga um að hann hefði skaðað sjálfan sig í beinni útsendingu á TikTok.

Lögreglan í Miami-Dade sagði í yfir­lýsingu að henni hefðu borist margar tilkynningar um einstakling sem væri í beinni útsendingu á samfélags­miðlum þar sem hann virtist fremja sjálfs­skaða.

Lögreglu­menn fóru þegar á heimili Hilton, þar sem þeir ræddu við fjölskyldu­meðlimi sem staðfestu að hann væri einn inni í húsinu.

Síðar tókst lögreglu að ná sambandi við Hilton.

„Viðkomandi náðist heill á húfi og var fluttur af sjúkra­flutninga­mönnum Miami-Dade á sjúkrahús þar sem hann fær nú læknis­aðstoð,“ sagði lögreglan í yfir­lýsingu til E! News.

Þar kemur jafnframt fram að sérhæfð áfalla­teymi lögreglu og geðheil­brigðis­starfsfólk hafi verið á vettvangi til að veita fjöl­skyldu hans stuðning.

Beina útsendingin hefur síðan verið fjarlægð af TikTok. Samkvæmt NBC News virtist Hilton í mynd­skeiðinu vera blóðugur og halda á því sem leit út fyrir að vera hnífur.

Umboðsmenn biðja um friðhelgi

Umboðs­menn Perez Hilton sögðust fljótlega hafa orðið varir við mynd­skeiðið sem fór í dreifingu á netinu, en hefðu þá ekki náð sambandi við hann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

„Helsta áhyggju­efni okkar er heilsa og velferð Perez, sem og velferð fjöl­skyldu hans. Þar til við höfum stað­festar upplýsingar munum við ekki velta neinu fyrir okkur eða tjá okkur frekar,“ sögðu þeir í yfir­lýsingu.

Þeir þökkuðu jafnframt fólki fyrir stuðninginn og báðu um að friðhelgi Hilton og fjöl­skyldu hans yrði virt.

Var nýlega alvarlega veikur

Fyrr á þessu ári greindi Perez Hilton, sem á þrjú börn, frá því að hann hefði legið á sjúkra­húsi í 21 dag vegna blóð­sýkingar.

Í apríl sagði hann frá því á Instagram að hann hefði einnig greinst með segarek í djúpbláæð eftir að hafa fundið fyrir miklum verk í fæti.

Læknar náðu þó að greina blóð­tappann snemma.

„Ég er svo þakklátur Guði að þetta fannst tímanlega. Hefði blóð­tappinn farið til lungna eða hjarta hefði það getað farið mjög illa,“ sagði Hilton þá.

Daginn eftir greindi hann frá því að aðgerðin hefði gengið vel og þakkaði heilbrigðis­starfsfólki fyrir meðferðina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs