1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

3
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

4
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

5
Minning

Hörður Torfa kveður Megas

6
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

7
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

8
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

9
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

10
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Til baka

Petoro slær á bjartsýni Heiðars um olíuleit á Drekasvæðinu

Norska ríkisolíufyrirtækið kannast ekki við þann áhuga á olíuleit á Drekasvæðinu, sem Heiðar Guðjónsson talaði um á fundi Sjálfstæðismanna.

Drekasvæðið
DrekasvæðiðEkki verður borað eftir olíu á svæðinu í bráð
Mynd: RÚV

Norska ríkisolíufélagið Petoro hefur ekki í hyggju að ráðast í frekari rannsóknir á Drekasvæðinu að svo stöddu og virðist áhugi þess á verkefninu vera takmarkaður. Félagið segir rannsóknir sem áður hafa farið fram ekki hafa gefið vísbendingar um að olía finnist þar í teljandi magni.

Þetta kemur fram í svari fyrirtækisins við fyrirspurn Austurfréttar, sem var send í kjölfar fundar Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð um olíuleit á svæðinu. Þar var meðal annars rætt um möguleika Drekasvæðisins og framtíð rannsókna á því.

Samkvæmt Austurfrétt setti Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og stjórnarformaður Dreka kolvetnis, á fundinum fram fullyrðingar um að Petoro hefði áður haft áhuga á frekari rannsóknum og jafnvel tilraunaborunum árið 2018. Í svari Petoro er þeirri lýsingu hins vegar hafnað.

„Petoro óskaði ekki eftir að hefja boranir árið 2018. Petoro hafði engin áform um frekari rannsóknir á Drekasvæðinu og hefur ekki lýst neinum áformum um frekari þátttöku í þeim,“ segir í svari upplýsingafulltrúa fyrirtækisins.

Einnig hafði verið bent á mögulegan olíuleitarsvæði suðvestan á Drekasvæðinu, en Petoro telur ekki tilefni til bjartsýni þar. „Bæði leyfishafi og Petoro komust að þeirri niðurstöðu að það væru engar líkur á að finna olíu í vinnanlegu magni. […] Fyrir utan þá ákvörðun að halda ekki áfram árið 2018 hefur Petoro ekki mótað sér neina skoðun á möguleikum Drekasvæðisins,“ segir í svarinu.

Petoro tók þátt í rannsóknunum á grundvelli samkomulags milli íslenskra og norskra stjórnvalda. Í því skyni var dótturfélagið Petoro Iceland stofnað, sem síðar var lagt niður árið 2019. Félagið hafði aðkomu að þremur leitarleyfum sem veitt voru á árunum 2013–2014.

Leyfunum var skilað eftir að hljóðbylgjurannsóknum lauk árið 2018. Kínverska fyrirtækið CNOOC var aðalleyfishafi, en bæði það og Petoro töldu að ekki væri að finna olíu í vinnanlegu magni á svæðinu. Við rannsóknirnar naut Petoro einnig tæknilegrar ráðgjafar frá norsku Olíustofnuninni, nú Landgrunnsstofnun Noregs, að því er fram kemur í frétt Austurfréttar.

Þrátt fyrir að á fundinum á Reyðarfirði hafi verið haldið fram að tæknin til borana á svæðinu væri til staðar, telur Petoro að helstu hindranir séu annars eðlis. „Mat Petoro er að jarðfræðin sé helsta áskorunin tæknilega í þessu samhengi.“

Fram kemur að öll frekari þátttaka Petoro í verkefnum á íslensku yfirráðasvæði sé háð ákvörðunum norskra stjórnvalda.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Loka auglýsingu