1
Heimur

Gabriel Ganley fallinn frá aðeins 22 ára að aldri

2
Fólk

Landsliðskona Íslands ólétt

3
Heimur

Kona bitin á baðströnd á Lanzarote

4
Innlent

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili

5
Heimur

Frakki sakaður um kynferðisbrot gegn leikskólabörnum

6
Innlent

Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum

7
Heimur

Fullyrðir að Sarah Ferguson og Diddy hafi verið bólfélagar

8
Heimur

Fimm unglingar drukknuðu í hitabylgjunni um helgina

9
Fólk

Selja hrífandi einbýli í Kópavogi

10
Heimur

Sérfræðingar vara við nýju pungtrendi

Til baka

Prestar á Íslandi lýsa yfir þungum áhyggjum vegna ófriðar í heiminum

„Við biðjum fyrir þeim sem lifa við stríð, ofbeldi og ofsóknir“

Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands.
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup ÍslandsMyndin tengist fréttinni ekki beint.

Presta- og djáknastefnu 2026 lauk nýverið, en hún var haldin á Akureyri að þessu sinni. Um 130 prestar og djáknar sóttu stefnuna, sem hófst með göngu frá Menntaskólanum á Akureyri að Akureyrarkirkju, þar sem setningarathöfn fór fram að messu lokinni.

Fjörugar umræður voru um upprisuna, játningar kirkjunnar og innri samþykktir hennar. Einnig samþykktu þátttakendur einróma ályktun þar sem þeir lýstu yfir miklum áhyggjum af stöðu heimsmála.

Ályktun Presta- og djáknastefnu 2026.

Presta- og djáknastefna haldin í Akureyrarkirkju og Glerárkirkju 14.-16. apríl 2026 lýsir yfir þungum áhyggjum vegna styrjalda, ofsókna og mannréttindabrota í heiminum í dag.

Presta- og djáknastefna minnir á að Guð er Guð friðar og að sérhver manneskja er sköpuð í Guðs mynd. Því verður hvorki ofbeldi né stríð réttlætt í nafni kristinnar trúar. Vígðir þjónar þjóðkirkjunnar fordæma allt ofbeldi og hvetja til virðingar fyrir þjóðarétti, mannréttindum og mannhelgi.

Presta- og djáknastefna áréttar að kirkjunni beri að standa með þolendum, tala fyrir friði og réttlæti ásamt því að vinna gegn hatri og sundrung.

Presta- og djáknastefna lýsir yfir samstöðu með þeim kirkjum í heiminum, þjóðum og einstaklingum sem lifa við hörmungar og afleiðingar stríðs og ofbeldis.

Presta- og djáknastefna hvetur söfnuði landsins og kirkjufólk til að taka skýra afstöðu með friði og réttlæti, auka hjálparstarf, biðja fyrir þeim sem þjást vegna stríðs og átaka og leggja sitt af mörkum til að miðla sátt og von.

Í Filippíbréfinu 4. kafla versum 6 - 9 er kirkja Krists hvött til að bera bænir sínar fram fyrir Guð:

6 Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. 7 Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir ykkar í Kristi Jesú.

8 Að endingu, systkin, allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er elskuvert og gott afspurnar, hvað sem er dygð og hvað sem er lofsvert, hugfestið það. 9 Þið skuluð gera þetta, sem þið hafið bæði lært og numið, heyrt og séð til mín. Og Guð friðarins mun vera með ykkur.

Presta- og djáknastefna biður kirkjufólk að tendra ljós og sameinast í þessari bæn.

Friðarins Guð.

Við biðjum fyrir þeim sem lifa við stríð, ofbeldi og ofsóknir, fyrir þeim sem syrgja, þeim sem flýja heimili sín og þeim sem búa við ótta og vonleysi.

Minn okkur á að sérhver manneskja er sköpuð í þinni mynd og hjálpaðu okkur að virða mannhelgi, réttlæti og frið. Tak frá okkur hatur, hörku og afskiptaleysi og gef að kirkja þín sýni kjark og stand ætíð með þeim sem þjást og beri vitni um kærleika þinn í orði og verki.

Leið þjóðir og leiðtoga heimsins af vegi ofbeldis inn á veg sátta, ábyrgðar og friðar. Gef okkur hugrekki til að vera friðflytjendur í okkar eigin samfélagi og halda á lofti voninni þegar myrkrið sækir að. Í Jesú nafni. Amen.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Segir Þorgerði sýna taugaveiklun
Innlent

Segir Þorgerði sýna taugaveiklun

„Hún er ráðalaus gagnvart því verkefni“
Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum
Innlent

Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum

Segir Mossad hafa hótað sér vegna rannsóknar á þjóðarmorðinu
Heimur

Segir Mossad hafa hótað sér vegna rannsóknar á þjóðarmorðinu

Fimm unglingar drukknuðu í hitabylgjunni um helgina
Heimur

Fimm unglingar drukknuðu í hitabylgjunni um helgina

„Fá betri þjónustu fyrir sama pening“
Pólitík

„Fá betri þjónustu fyrir sama pening“

Rússar segjast leita að leynilegum stjórnstöðvum Úkraínu
Heimur

Rússar segjast leita að leynilegum stjórnstöðvum Úkraínu

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili
Innlent

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili

Helga Vala hamast gegn andstöðu við skjólshús Geðhjálpar
Innlent

Helga Vala hamast gegn andstöðu við skjólshús Geðhjálpar

Frakki sakaður um kynferðisbrot gegn leikskólabörnum
Heimur

Frakki sakaður um kynferðisbrot gegn leikskólabörnum

Svíar stórlækka verð í almenningssamgöngur
Heimur

Svíar stórlækka verð í almenningssamgöngur

Kona bitin á baðströnd á Lanzarote
Heimur

Kona bitin á baðströnd á Lanzarote

Innlent

Segir Þorgerði sýna taugaveiklun
Innlent

Segir Þorgerði sýna taugaveiklun

„Hún er ráðalaus gagnvart því verkefni“
Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum
Innlent

Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili
Innlent

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili

Helga Vala hamast gegn andstöðu við skjólshús Geðhjálpar
Innlent

Helga Vala hamast gegn andstöðu við skjólshús Geðhjálpar

Loka auglýsingu