1
Fólk

Hafdís tjáir sig í fyrsta sinn um aðkastið

2
Innlent

Ölvuð ungmenni undir lögaldri á kveðjuhófi Valhallar

3
Fólk

Atli Fannar rifjar upp eigin reynslu eftir Skorra Mánasson-málið

4
Skoðun

Þegar heimili verður að víglínu: Saga einstæðrar móður í auga hvirfilbylins

5
Heimur

Farþegi lést eftir að hafa fallið fyrir borð af skemmtiferðaskipi

6
Fólk

Fyrrum forstjóri Hertz vill toppverð fyrir höfðingjasetur

7
Heimur

Hárgreiðslukona á daginn og hrottalegur fangapyntari á kvöldin

8
Innlent

Kex innkallað af heilbrigðiseftirliti

9
Innlent

Lektor segir RÚV sýna hlutdrægni í fréttaflutningi um Gaza

10
Heimur

Unnið að því að bera kennsl á konurnar þrjár sem drukknuðu í Brighton

Til baka

Ragnar Þór svarar Sólveigu Önnu fullum fetum: „Barnalegt og kjánalegt að þykjast voða hissa núna“

Ragnar Þór Pétursson
Ljósmynd: Facebook
Ragnar Þór Pétursson Ljósmynd: Facebook

Ragnar Þór Pétursson svarar gagnrýnir Sólveigar Önnu Jónsdóttur og annarra um nýjan kjarasamning kennara, fullum fetum.

Fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, Ragnar Þór Pétursson skrifaði færslu á Facebook í dag þar sem hann sendir pílur á Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, sem hefur gagnrýnt nýsamþykktan kjarasamning kennara og segir að samningurinn ætti ekki að koma neinum á óvart. Færslan hefst á eftirfarandi hátt:

„Ekki ein manneskja (sem á annað borð les fréttir) – og svo sannarlega ekki nokkur sála sem tengist stéttarfélögum – hefur misst af því hvað kjarabarátta kennara kjarnaðist um. Kröfurnar komu ítrekað og endalaust fram. Krafan voru efndir samkomulags um jöfnun launa og leiðrétting launa í takt við samanburðarhópa. Öll, sem kynnt hafa sér málið, vita líka að ítrekaðar greiningar hafa sýnt að þar hallar mest á KÍ (þótt að sjálfsögðu séu einstakir hópar í öðrum stéttarfélögum sem eiga sambærilega kröfu).“

Segir Ragnar Þór næst, það bæði „barnalegt og kjánalegt“ fyrir fólk að stíga nú fram og „þykjast voða hissa“:

„Þess vegna er barnalegt og kjánalegt fyrir fólk að koma fram núna og þykjast voða hissa á því að kennarar hafi með átökum og samstöðu náð samningi um fyrsta skrefið (takið eftir því) í þeirri leiðréttingu. Allt tal um að þetta sé í öðrum takti en eitthvað annað er uppgerðarskilningsleysi hjá fólki sem veit miklu betur. Sparið ykkur og okkur svona sýndarmennsku.“

Ragnar Þór segist í færslunni styðja fjölmörg stéttarfélög í kjarabaráttu sinni:

„Sem kennari hef ég stutt mörg stéttarfélög í sinni kjarabaráttu. Ég styð það að laun dugi fyrir framfærslu. Ég styð það að barnafjöskyldur geti búið ungmennum þroskavænleg skilyrði. Ég fyrirlít kerfi sem koma fram við verkafólk eins og vinnudýr og stend allan daginn með því að komið verði í veg fyrir meðferð eins og þá sem hefur verið í fréttum af ræstingafólki. Réttlæti eru mínir hagsmunir  hvort sem óréttlætið sem verið er að uppræta snýr að mér persónulega eða ekki.“

Að lokum beinir hann orðum sínum að Sólveigu Önnu og annarra talsmenn stéttarfélaga:

„Því segi ég þetta eitt: Talsmenn annarra stéttarfélaga. Það er neðan ykkar virðingar að láta sem þið hafið ekki vitað nákvæmlega um hvað kennarar eru búnir að vera að semja. Það er ykkur ósamboðið að styðja þær kröfur ekki. Og það kemur öllum best að átta sig á því að þetta var aðeins fyrsta skrefið í leiðréttingu okkar. Við munum fylgja þessu eftir og til þess hafa aðilar tvö ár. Að öðrum kosti heldur baráttan áfram og við munum taka hana alla leið.

Og búist nú við því.“

 

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Ástin bjargaði Guðmundi Inga frá glötun
Viðtal
Fólk

Ástin bjargaði Guðmundi Inga frá glötun

„Í raun og veru fékk ég ekki að bjóða honum út nema að vera edrú.“
Rifjar upp andstöðu Ólafs Ragnars við NATO og EES
Pólitík

Rifjar upp andstöðu Ólafs Ragnars við NATO og EES

Kex innkallað af heilbrigðiseftirliti
Innlent

Kex innkallað af heilbrigðiseftirliti

Inga greinir frá andláti föður síns í tilfinningaþrungnu myndbandi
Myndband
Minning

Inga greinir frá andláti föður síns í tilfinningaþrungnu myndbandi

Sigfríð Ingólfsdóttir er fallin frá
Minning

Sigfríð Ingólfsdóttir er fallin frá

Hvern vilt þú sjá sem næsta borgarstjóra Reykjavíkur?
Könnun
Pólitík

Hvern vilt þú sjá sem næsta borgarstjóra Reykjavíkur?

Dýralækni í Svíþjóð bannað að halda dýr
Heimur

Dýralækni í Svíþjóð bannað að halda dýr

Dóri DNA furðar sig á viðsnúningi Hildar
Pólitík

Dóri DNA furðar sig á viðsnúningi Hildar

Sanders hjólar í Trump og Netanyahu
Heimur

Sanders hjólar í Trump og Netanyahu

Konurnar þrjár sem drukknuðu í Brighton allar skyldar
Heimur

Konurnar þrjár sem drukknuðu í Brighton allar skyldar

Minnast fórnarlamba Nakba með samstöðugöngu upp Esjuna
Innlent

Minnast fórnarlamba Nakba með samstöðugöngu upp Esjuna

Svara ekki spurningum um áfengiskaup borgarinnar
Pólitík

Svara ekki spurningum um áfengiskaup borgarinnar

Persónulegar deilur hindra ekki meirihlutasamstarf á Ísafirði
Pólitík

Persónulegar deilur hindra ekki meirihlutasamstarf á Ísafirði

Innlent

Kex innkallað af heilbrigðiseftirliti
Innlent

Kex innkallað af heilbrigðiseftirliti

MAST varar fólk við að borða kexið
Lektor segir RÚV sýna hlutdrægni í fréttaflutningi um Gaza
Innlent

Lektor segir RÚV sýna hlutdrægni í fréttaflutningi um Gaza

Minnast fórnarlamba Nakba með samstöðugöngu upp Esjuna
Innlent

Minnast fórnarlamba Nakba með samstöðugöngu upp Esjuna

Húsráðandi rétt náði að stoppa bílaþjóf sem hafði látið greipar sópa yfir daginn
Innlent

Húsráðandi rétt náði að stoppa bílaþjóf sem hafði látið greipar sópa yfir daginn

Ölvuð ungmenni undir lögaldri á kveðjuhófi Valhallar
Innlent

Ölvuð ungmenni undir lögaldri á kveðjuhófi Valhallar

Loka auglýsingu