1
Innlent

Auður stal milljónum frá stéttarfélagi

2
Fólk

Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu

3
Menning

Stór orð Siggu Beinteins

4
Innlent

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei

5
Sport

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar

6
Innlent

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið

7
Heimur

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu

8
Innlent

Ætlaði að slá í gegn í íslenska áfengisbransanum en lögreglan handtók hann

9
Innlent

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur

10
Innlent

Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu

Til baka

Dóri DNA furðar sig á viðsnúningi Hildar

„Er þinn frambjóðandi heimskur? eða er hann lygari?“

DNAHildur
Dóri DNADóri lætur gamminn geysa um Borgarlínuna
Mynd: Samsett

Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, gagnrýnir harðlega umræðuna um Borgarlínuna í langri færslu sem hann birti á samfélagsmiðlinum X. Þar segist hann óttast að breytingar á verkefninu geti eyðilagt það sem hann telur eitt mikilvægasta og metnaðarfyllsta skipulagsverkefni Reykjavíkur í áratugi.

Dóri segir umræðuna fyrir komandi kosningar hafa einkennst af hrópum og einföldunum þar sem andstæðingar Borgarlínunnar horfi aðeins á verkefnið sem samgönguframkvæmd en ekki heildstæða borgarþróun.

Hann nefnir sérstaklega skipulagið við Suðurlandsbraut sem dæmi um hvernig Borgarlínan geti umbreytt borginni með nýjum borgargötum, þjónustu og íbúðabyggð í kringum stoppistöðvar.

Stærsti hluti færslunnar beinist þó að Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sem hann segir hafa snúið baki við verkefninu þrátt fyrir að hafa áður verið eindreginn stuðningsmaður þess.

„Þvílík vonbrigði að sjá eftir Hildi Björns fara þennan veg,“ skrifar Dóri og segist hafa heyrt hana tala „af innlifun“ um Borgarlínuna áður fyrr. Hann bendir á að hún hafi stutt allar helstu ákvarðanir sem hafi komið verkefninu á þann stað sem það er í dag.

„Og svo er hún mætt til Tóta að hnussa og fussa og láta eins og þetta sé eitthvað tómt píp úr einhverjum galgopum á Kaffi Vest. Djöfulsins drasl.“

Þá rifjar hann upp persónulegt samtal þeirra á veitingastaðnum Hosiló í vetur þar sem hún hafi spurt hann hvort hann hefði áhuga á að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kosningar.

„Þá var hún talsmaður Borgarlínunnar. Hvað gerðist í millitíðinni – ég veit það ekki,“ skrifar hann.

Dóri gagnrýnir jafnframt stjórnmálafólk sem tali fyrir aukinni uppbyggingu í útjaðri borgarinnar samhliða loforðum um minni umferð.

„Þau ætla að laga umferðina með því að bæta við bílum í hana,“ skrifar hann og bætir við: „Ég veit ekki alveg hvað maður segir við þessu. Er þinn frambjóðandi heimskur? eða er hann lygari?“

Segir Dóri einnig að það sé ekki tilvijun að aðeins „gamlir karlar“ skrifi grein gegn Borgarlínunni:

„Borgarlínan er svo fokking vandað verkefni. Og það er ekki að ástæðulausu að það eru bara gamlir karlar sem skrifa greinar gegn henni - (og enginn þeirra minnist á skipulagsþáttinn).“

Rapparinn og rithöfundurinn beitir kaldhæðninni af list í næstu orðum sínum:

„En þú veist, líklega mun þetta fara til fjandans. Ég jafna mig, heima vorum við Alþýðubandalagsfólk á meðan Davíð Oddsson var Davíð Oddsson og við kunnum þá list að éta skít betur en aðrir. Ég verð samt að reykja vindil og hlusta á rapp.“

Í lok færslunnar tekur hann sérstaklega fram að hann hafi aldrei kosið Samfylkingin og myndi aldrei taka sæti á lista Sjálfstæðisflokkurinn, þrátt fyrir samtalið við Hildi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu
Innlent

Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu

Trump við Tucker Carlson: „Við deyjum öll hvort sem er“
Myndband
Heimur

Trump við Tucker Carlson: „Við deyjum öll hvort sem er“

Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur karlmönnum
Innlent

Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur karlmönnum

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu
Heimur

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu

Ísraelsku heimildarmyndinni NAZA dreift ókeypis á netinu
Heimur

Ísraelsku heimildarmyndinni NAZA dreift ókeypis á netinu

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist
Heimur

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát
Heimur

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur
Innlent

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið
Innlent

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið

Síðustu ferðir Noah litla raktar
Heimur

Síðustu ferðir Noah litla raktar

Myndband frá hafnaboltaleik vekur hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum
Myndband
Heimur

Myndband frá hafnaboltaleik vekur hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum

Kettlingur gerður að lukkudýri verktakafyrirtækis eftir björgun
Heimur

Kettlingur gerður að lukkudýri verktakafyrirtækis eftir björgun

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei
Innlent

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei

Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn
Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn

„Staðreyndirnar tala sínu máli“
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist
Pólitík

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri
Pólitík

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri

Tóku saman föggurnar og fluttu í miðbæinn
Pólitík

Tóku saman föggurnar og fluttu í miðbæinn

Loka auglýsingu