1
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

2
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

3
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

4
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

5
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

6
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

7
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

8
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

9
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

10
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

Til baka

Lektor segir RÚV sýna hlutdrægni í fréttaflutningi um Gaza

Gagnrýnir RÚV fyrir að hunsa umfjöllun New York Times um kynferðisofbeldi á hendur palestínskum föngum

Ingólfur Gíslason
Ingólfur GíslasonIngólfur hjólar í RÚV
Mynd: Háskóli Íslands

Ingólfur Gíslason, lektor við Háskóli Íslands, gagnrýnir fréttastofu RÚV harðlega í pistli sem birtist á Vísi. Þar sakar hann ríkismiðilinn um einhliða og valkvæða umfjöllun um átökin í Palestínu og Ísrael.

Tilefni pistilsins er grein sem birtist í The New York Times 11. maí um kynferðisofbeldi sem palestínskir fangar hafa orðið fyrir af hálfu ísraelskra fangavarða, hermanna og yfirheyrsluaðila.

Ingólfur bendir á að blaðið sé almennt talið hliðhollt Ísrael og því hafi umfjöllunin vakið sérstaka athygli. Hann segir ísraelsk stjórnvöld hafa brugðist harkalega við greininni og meðal annars fordæmt hana opinberlega.

Í pistlinum segir Ingólfur að ekkert hafi komið fram í greininni sem ekki hafi áður birst í skýrslum palestínskra, ísraelskra og alþjóðlegra mannréttindasamtaka, auk stofnana Sameinuðu þjóðirnar.

Hann gagnrýnir jafnframt að fréttastofa RÚV hafi ekki fjallað um greinina eða nýlegar skýrslur mannréttindasamtaka um meint kynferðisofbeldi í ísraelskum fangelsum. Þar nefnir hann sérstaklega skýrslu ísraelsku mannréttindasamtakanna B'Tselem sem kom út í janúar og ber heitið Living Hell: The Israeli Prison System as a Network of Torture Camps.

Samkvæmt Ingólfi eru nú taldir vera á milli níu og tíu þúsund Palestínumenn í ísraelskum fangelsum og fangabúðum, þar af hundruð barna.

Í pistlinum spyr hann hvers vegna RÚV hafi kosið að fjalla um nýja skýrslu ísraelskra samtaka um meint kynferðisofbeldi Hamas árið 2023 en ekki umfjöllun New York Times eða skýrslur gamalgróinna mannréttindasamtaka.

„Ég á bágt með að sjá þann trúverðugleika eða óhlutdrægni þegar fréttastofan velur með þessum hætti að vekja athygli á ótraustri heimild um hvað gerðist á einum degi fyrir meira en tveimur árum en hunsar traustar heimildir um ofbeldi á miklu stærri skala sem á sér enn þá stað nákvæmlega núna,“ skrifar Ingólfur meðal annars.

Hann tekur einnig undir gagnrýni sem birtist nýlega á Vísi þar sem því var haldið fram að íslenskir fjölmiðlar endurómuðu áróður ísraelskra stjórnvalda án nægrar gagnrýni.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

Donald Trump segist ekki ætla að skipta sér að framsalsmáli bræðranna
Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð
Heimur

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum
Myndir
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum
Myndir
Landið

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio
Pólitík

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Auðjöfurinn er styrktaraðili sjóðs sem styður ólöglegar landnemabyggðir
Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda
Innlent

Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Loka auglýsingu