1
Innlent

Auður stal milljónum frá stéttarfélagi

2
Fólk

Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu

3
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir dópsölu og peningaþvætti

4
Innlent

Mótmælandi hótaði að nauðga lögreglukonu

5
Menning

Stór orð Siggu Beinteins

6
Fólk

Selur 350 milljóna lúxuseign og tekur fasteign upp í

7
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

8
Landið

Vitleysingar stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru

9
Innlent

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“

10
Minning

Baldur Sveinsson er látinn

Til baka

Rifjar upp andstöðu Ólafs Ragnars við NATO og EES

Hagfræðiprófessorinn Gauti B. Eggertsson gagnrýnir málflutning Ólafs Ragnars Grímssonar um Evrópusambandið

Gauti B. Eggertsson
Gauti B. EggertssonHagfræðiprófessorinn beinir vasaljósinu að Ólafi Ragnari
Mynd: econfip.org

Gauti B. Eggertsson, prófessor í hagfræði, gagnrýnir harðlega málflutning Ólafur Ragnar Grímsson um Evrópusambandið í ítarlegri Facebook-færslu þar sem hann rifjar upp andstöðu fyrrverandi forsetans við bæði NATO og EES-samninginn.

Tilefni færslunnar er nýlegt hlaðvarpsviðtal við Ólaf Ragnar þar sem hann kallaði eftir því að Evrópumálin yrðu rædd „í sögulegu ljósi“. Gauti segir það ágæta hugmynd, en telur að slíkt sögulegt samhengi varpi einnig ljósi á eigin pólitíska fortíð Ólafs.

Í færslunni rifjar Gauti upp hvernig Ólafur Ragnar hafi á sínum tíma verið harður andstæðingur aðildar Íslands að NATO og haldið því fram að bandalagið gerði Ísland að mögulegu skotmarki í kjarnorkustríði. Þá rifjar hann einnig upp afstöðu hans gegn EES-samningnum árið 1994.

„Ég segi nei,“ hafði Ólafur Ragnar meðal annars sagt um EES-samninginn á Alþingi á sínum tíma, að því er Gauti rifjar upp.

„Ekki skorti dramatíska lýsingu á þeirri martröð sem samþykkt EES myndi hafa í för með sér fyrir landsmenn“, skrifar Gauti og vitnar síðan í orð Ólafs Ragnars:

„Staðreyndin er nefnilega sú að þessi mikla evrópska draumsýn sem var hið pólitíska bakland fyrir þessum samningum hefur breyst í martröð. Jafnvel í slíka martröð að minningarnar frá tímum nasistanna birtast okkur óþyrmilega á sjónvarpsskerminum kvöld eftir kvöld. Richard von Weizsäcker, sá merki forseti Þýskalands, húmanisti, höfðingi og sómamaður, sem heimsótti okkur Íslendinga, getur ekki einu sinni haldið ræðu í höfuðborg Þýskalands án þess að æstur múgur nýnasista grýti hann svo að öryggisverðir verða að bregða skjöldum fyrir forsetann til að tryggja líf hans.“

Gauti segir sérstaklega athyglisvert að skoða spár Ólafs Ragnars um framtíð utanríkisviðskipta Íslands. Hann rifjar meðal annars upp ummæli þar sem Ólafur velti því upp hvort íslensk lakkrísframleiðsla í Kína gæti reynst þjóðarbúinu arðbærari en EES-samningurinn.

Vitnar Gauti í Ólaf aftur:

„Það getur nefnilega vel verið að þessi lakkrísverksmiðja í Kína eigi eftir að gefa íslendingum miklu meiri hagnað en EES-ævintýri hæstv. utanrrh. Og þegar upp verður staðið snemma á 21. öldinni muni menn frekar hengja upp myndir af hv. þm. Árna Johnsen en hæstv. utanrrh. Jóni Baldvin Hannibalssyni því að hv. þm. Árni Johnsen hafi haft meira nef fyrir því hvar gróðavonina var að finna en hæstv. utanrrh. Það eru um það bil 1.000 millj. íbúar í Kína. Þeir geta borðað mikið af lakkrís. Íslendingar sem fengju sterka stöðu á þeim markaði geta skilað tekjum og arði til þjóðarbúsins í nánast himinháum stærðum.“

Prófessorinn bendir á að árið 2025 fari meira en 80 prósent af vöruútflutningi Íslands til Evrópu en einungis lítið brot til Kína og Indlands.

„Mér þykja litlar líkur á að Indverjar og Kínverjar fari að borða lakkrís til að vega upp á móti 80 prósentum vöruútflutnings Íslands til Evrópu á næstunni,“ skrifar hann.

Gauti telur málflutning Ólafs Ragnars um Evrópusambandið í dag mjög líkan þeim rökum sem hann notaði gegn EES fyrir rúmum þremur áratugum. Hann segir umræðuna um Evrópusambandið þurfa að fara fram í sögulegu samhengi, en að það eigi einnig við um afstöðu þeirra sem tjá sig um málið.

„En þá skulum við ekki bara nota vasaljósið á Brussel. Látum það líka skína á Ólaf Ragnar,“ skrifar Gauti að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu
Innlent

Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu

Trump við Tucker Carlson: „Við deyjum öll hvort sem er“
Myndband
Heimur

Trump við Tucker Carlson: „Við deyjum öll hvort sem er“

Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur karlmönnum
Innlent

Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur karlmönnum

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu
Heimur

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu

Ísraelsku heimildarmyndinni NAZA dreift ókeypis á netinu
Heimur

Ísraelsku heimildarmyndinni NAZA dreift ókeypis á netinu

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist
Heimur

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát
Heimur

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur
Innlent

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið
Innlent

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið

Síðustu ferðir Noah litla raktar
Heimur

Síðustu ferðir Noah litla raktar

Myndband frá hafnaboltaleik vekur hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum
Myndband
Heimur

Myndband frá hafnaboltaleik vekur hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum

Kettlingur gerður að lukkudýri verktakafyrirtækis eftir björgun
Heimur

Kettlingur gerður að lukkudýri verktakafyrirtækis eftir björgun

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei
Innlent

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei

Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn
Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn

„Staðreyndirnar tala sínu máli“
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist
Pólitík

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri
Pólitík

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri

Tóku saman föggurnar og fluttu í miðbæinn
Pólitík

Tóku saman föggurnar og fluttu í miðbæinn

Loka auglýsingu