1
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

2
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

3
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

4
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

5
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

6
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

7
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

8
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

9
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

10
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

Til baka

Íslenskt par náðist á myndband ráðast á strætóbílstjóra

„Höfum séð þetta en enginn tilkynning komið til okkar um málið.“

slagsmál2
Frá átökunumTvö ungmenni veitast að bílstjóranum
Mynd: Instagram-skjáskot

Instagram-reikningurinn Íslenskt rugl birti í morgun myndskeið þar sem því er haldið fram að þar megi sjá bílstjóra strætisvagns í slagsmálum við tvö ungmenni.

Í byrjun myndbandsins sést bílstjóri stætisvagns verjast höggum tveggja ungmenna fyrir utan vagninn og slá frá sér. Í lok myndbandsins virðist bílstjórinn vera kominn inn í vagninn en heldur áfram að verjast höggum.

Mannlíf heyrði í farþega strætisvagnsins sem sést í myndbandinu fara út til að aðstoða bílstjórann en það er hin lettneska Sindija Belsone. Samkvæmt henni átti atvikið sér stað við stoppustöðina á Smáratorgi fyrir tveimur til þremur vikum síðan.

Sindija, 31 árs, segist í byrjun ekki hafa verið mikið að fylgjast þar sem hún var í símanum að tala við vin sinn. Hún hafi þó tekið eftir því að íslenskt par, ungur maður og ung kona, hafi komið inní strætisvagninn og að konan hafi tekið upp á því að hlaupa fram og til baka eftir vaginum á meðan maðurinn ræddi við bílstjórann. Segist hún halda að fólkið hafi verið á einhverjum efnum. Næsta sem Sindija vissi var að maðurinn hóf að láta höggin dynja á bílstjóranum.

„Bílstjórinn náði að fara út og þau réðust þá bæði á hann,“ segir Sindija í samtali við Mannlíf. Í fyrstu hafi hún verið hikandi við að skerast í leikinn vegna frétta af hnífstunguárásum en hafi síðan ákveðið að hjálpa bílstjóranum. „Ég hafði nýlega heyrt af hnífaárásum, og var því nokkuð hrædd, því mig langar ekki að deyja,“ segir hún glaðleg en heldur svo áfram: „En síðan sá ég að enginn, ekki nokkur skapaður maður ætlaði að hjálpa bílstjóranum, þannig að ég ákvað að hjálpa. Í myndbandinu geturðu heyrt mig segja í símann við vin minn, á mínu tungumáli, að ég ætli að fara út að hjálpa. Þannig að ég hljóp út og á því augnabliki ætlaði maðurinn að slá bílstjórann en ég byrjaði að öskra á þau bæði „Hvað í andskotanum eruð þið að gera? Þetta er opinber staður og það eru börn í strætisvagninum. Hvað eruð þið að spá?“.“

Það var þá sem parið gekk í burtu og bílstjórinn gat haldið áfram ferð sinni. Aðspurð um líðan bílstjórans segir Sindija að hann hafi virkað afar skelkaður enda hafi tveir einstaklinga ráðist á hann í einu.

Þegar blaðamaður Mannlífs spurði hvort parið hafi veist að henni neitar hún því og bætir við:

„Ef þau hefðu reynt það, hefðu þau endað á sjúkrahúsi.“ Útskýrði hún að fyrr á árum hefði hún verið svolítill slagsmálahundur og kunni því að slást.

Þá gagnrýnir Sindija harðlega að enginn hafi komið bílstjóranum til hjálpar.

„Mér finnst að fleiri eigi að gera það sem ég gerði, stíga inn í svona árásir. Ég var mjög sorgmædd því að þegar ég hljóp út komu tveir gaurar út úr vagninum og annar fór að taka upp á símann sinn og hinn var bara að fylgjast með. En ég myndi gera þetta aftur ef ég þyrfti. Í byrjun var ég að bíða eftir að einhver karlmaður myndi stíga inn í því vagninn var fullur af karlmönnum. Ég er bara 166 cm á hæð þannig að ég er frekar smávaxin. En nokkuð rugluð,“ bætti hún við að lokum og hló.

Mannlíf heyrði í framkvæmdarstjóra Strætó, Jóhann Svavar Rúnarsson, vegna málsins en svar hans var stutt.

„Kannaði hjá mínu folki og enginn heyrt um þetta.
Svona atvik mjög sjaldgæf en nokkur tilvik í gegnum tíðina“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

Donald Trump segist ekki ætla að skipta sér að framsalsmáli bræðranna
Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð
Heimur

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum
Myndir
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum
Myndir
Landið

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio
Pólitík

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Auðjöfurinn er styrktaraðili sjóðs sem styður ólöglegar landnemabyggðir
Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda
Innlent

Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Loka auglýsingu