1
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

2
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir Reykholtsmálið

3
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

4
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

5
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

6
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

7
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

8
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

9
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

10
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Til baka

Mohammed má kjósa en ekki vera áfram í landinu

Hælisleitandi frá Gaza, sem á að vísa á brott frá landinu, fékk tilkynningu frá Þjóðskrá um að hann megi kjósa í komandi sveitastjórnarkosningum.

Mohammed Alkurd
Mohammed AlkurdAlkurd var í vinnu hér á landi þar til honum var meinað að vinna
Mynd: Facebook

Mohammed Alkurd, palestínskur hælisleitandi á Íslandi, segir mótsagnakennt að hafa fengið tilkynningu um kosningarétt sinn á sama tíma og ákvörðun hafi þegar verið tekin um brottvísun hans úr landi.

Í Facebook-færslu sem hefur vakið athygli skrifar Mohammed, sem er frá Gaza-borg, að honum finnist rödd sín „meira velkomin en hann sjálfur“. Hann segir sér heimilt að taka þátt í ákvörðunum um framtíð landsins í sveitarstjórnarkosningum, en ekki að vera áfram í landinu til að upplifa niðurstöðurnar.

þjóðskrá
Mynd: Facebook

„Ég get kosið í kosningunum… en ég get ekki verið áfram til að sjá niðurstöðuna,“ skrifar hann og bætir við: „Lýðræði er fallegt… nema þegar það stoppar við rétt manns til að fá að vera áfram.“

Í athugasemd við færsluna segir Mohammed að honum sé ekki heimilt að vinna og að hann upplifi sig stundum „eins og fanga utan fangelsis“. Hann segir að hann hafi ekki fengið fjárhagsaðstoð frá ríkinu síðan hann þurfti að hætta störfum í júlí á síðasta ári vegna strangari reglna.

„Það eina sem ég get gert núna er að bíða, í von um að lögfræðingurinn minn og nokkrir vinir geti fundið lausn svo ég verði ekki sendur úr landi,“ skrifar hann.

Hann lýsir jafnframt erfiðum félagslegum og fjárhagslegum aðstæðum og segist vona að mál hans verði tekið til endurskoðunar.

Í umræðum undir færslunni bentu aðrir á að útlendingar með lögheimili á Íslandi geti kosið í sveitarstjórnarkosningum, þótt þeir hafi ekki íslenskan ríkisborgararétt. Kona að nafni Drífa Björk útskýrði að slíkar reglur giltu einnig víða á Norðurlöndum og að hún sjálf hefði kosið í sveitarstjórnarkosningum erlendis án þess að hafa ríkisborgararétt þar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt
Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

Kærir Netanyahu og segir hann reyna að hylma yfir eigin ábyrgð
Heimur

Kærir Netanyahu og segir hann reyna að hylma yfir eigin ábyrgð

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt
Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Loka auglýsingu