
Rún Ingvarsdóttir
Mynd: Stjórnarráðið
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur ráðið Rún Ingvarsdóttur í stöðu aðstoðarmanns ráðherra. Rún er með M.A. gráðu í alþjóðafræðum frá Berkeley-háskóla í Kaliforníu og býr yfir fjölbreyttri reynslu af samskiptamálum, fjölmiðlum og atvinnulífinu.
Undanfarin fjögur ár hefur Rún gegnt starfi samskiptastjóra hjá Veitum, dótturfélagi Orkuveitunnar. Þaðan kom hún frà Landsbankanum þar sem hún starfaði í sjö ár sem sérfræðingur í samskiptamálum. Á árunum 2007–2015 var hún fréttamaður á fréttastofu RÚV í erlendum fréttum.
Rún tekur til starfa í utanríkisráðuneytinu í dag 1. september og mun starfa við hlið Ingileifar Friðriksdóttur sem einnig er aðstoðarmaður utanríkisráðherra.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
