1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir að losa þig við úr geymslunni

3
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

4
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

5
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

6
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

7
Innlent

Reyndi að lauma sér til Íslands með fölsuðu skilríki

8
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

9
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

10
Innlent

Fjórir bílar í alvarlegu umferðarslysi

Til baka

Rússi ók á ellefu manns í Frakklandi

Talið er hann hafi gert þetta viljandi

Frá vettvangi Cannes
Frá vettvangi í Caen
Mynd: MATTHIEU CLAVEL / AFP

Tveir menn létust og níu særðust þegar ökumaður ók bifreið viljandi á hóp fólks í borginni Caen í Normandí í norðurhluta Frakklands seint á miðvikudagskvöld. Franskir fjölmiðlar greina frá því að lögregla hafi handtekið 26 ára rússneskan ríkisborgara af tsjetsjenskum uppruna vegna málsins.

Atvikið átti sér stað fyrir utan bar í grennd við lestarstöðina í Caen. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafði komið til átaka skömmu áður og er talið að hinn grunaði hafi lent í átökum við nokkra einstaklinga.

Maðurinn yfirgaf vettvang en sneri skömmu síðar aftur á bifreið. Hann ók inn á akrein fyrir strætisvagna og síðan viljandi á hóp fólks sem stóð við strætisvagnaskýli.

Annar þeirra sem létust var 35 ára afganskur maður. Hinn var 28 ára og er einnig talinn hafa verið afganskur ríkisborgari.

Níu menn á aldrinum 17 til 36 ára særðust í ákeyrslunni og voru sjö þeirra sagðir í lífshættu. Nokkrir hinna særðu hlutu meðal annars beinbrot á neðri útlimum. Meðal fórnarlambanna eru menn af frönskum, egypskum, bangladesskum og súdönskum uppruna.

Ökumaðurinn flúði af vettvangi eftir ákeyrsluna og hófst umfangsmikil leit að honum. Hann var síðar handtekinn í hafnarbænum Ouistreham, skammt frá Caen.

Við yfirheyrslur sagðist maðurinn hafa orðið fyrir ofbeldi við lestarstöðina áður en hann ók á fólkið. Hann var ekki undir áhrifum áfengis þegar atvikið átti sér stað.

Saksóknarar segja ekkert benda til þess að hryðjuverk hafi verið að baki árásinni. Hinn grunaði dvelur löglega í Frakklandi, var ekki á skrá hjá frönskum leyniþjónustuyfirvöldum og hafði ekki áður hlotið refsidóm.

Rannsókn málsins stendur yfir.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu