Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein

„Lífið tók algjöra U-beygju“

Ester Júlía
Ester Júlía Ester berst nú við erf­iðan brjóstakrabba Mynd: Facebook

Lína Rut hefur hrundið af stað söfnun til stuðnings æsku­vinkonu sinni, Ester Júlíu Olgeirs­dóttur, sem glímir við árásar­gjarnt HER2-jákvætt brjósta­krabba­mein og stendur nú frammi fyrir langri og erfiðri meðferð.

Í hjartnæmri Facebook-færslu segir Lína að Ester búi ein í Osló og hafi lítið stuðningsnet þar, fyrir utan hundinn sinn, Esju. Hún hafi verið nýskilin og nýhafin í nýju starfi þegar hún fékk krabbameins­greininguna.

„Lífið tók algjöra U-beygju,“ skrifar Lína og segir Ester þegar hafa gengið í gegnum erfiða lyfja­meðferð, skurð­aðgerð og geisla­meðferð.

Vonir hafi staðið til þess að meðferðinni færi senn að ljúka, en nýlega hafi komið í ljós að hefja þurfi aðra níu mánaða lyfja­meðferð.

„Við vorum báðar bjartsýnar og farnar að plana ferð í húsið mitt í Suður-Frakk­landi, en því miður þarf Ester að hefja aðra lyfja­meðferð þar sem ekki tókst að koma í veg fyrir meinið,“ segir Lína.

Hún bendir jafnframt á að Ester lifi nú á sjúkra­dagpeningum sem dugi skammt og að íbúðin sem hún leigir hafi verið sett á sölu. Hún þurfi því að flytja út fyrir 1. ágúst, samhliða því að standa straum af nauðsyn­legum tann­viðgerðum og heimsókn til kjálka­skurðlæknis áður en nýja meðferðin geti hafist.

Samkvæmt Línu hefur norska vinnu- og velferðar­stofnunin NAV hafnað beiðni Esterar um fjárhags­aðstoð, þótt hún hyggist halda áfram að leita réttar síns.

Lína segir að öll framlög, stór sem smá, geti skipt sköpum.

„Allt sem tikkar inn léttir henni byrðarnar og gefur henni svigrúm til að einbeita sér að því sem skiptir mestu máli núna – að ná heilsu.“

Hún hvetur jafnframt þá sem ekki geta lagt söfnuninni lið fjárhags­lega til að deila færslunni eða senda Ester hvatningarorð.

„Peppið frá ykkur síðast hjálpaði svo mikið. Ester sat með tárvot augu við að lesa kveðjurnar ykkar. Það gaf henni gríðar­legan styrk. Magnað hvað internetið og samheldni getur gert fyrir okkur,“ skrifar Lína Rut.

Hér má sjá reiknings­upplýsingar ef fólk vill styrkja Ester:

Ester Júlía Olgeirs­dóttir: Kt 281166-4419, reikn. 2200-26-286611

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Þrír skipverjar fórust þegar Jökull ÞH 299 sökk um 60 sjómílur austur af landinu. Fjórtán var bjargað með þyrlu.
Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Innlent

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Pólitík

„Við skulum ekki gera lítið úr baráttu íslenskra kvenna“

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“