
Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis hefur verið valin í hóp fyrstu 100 kvenhetja Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í landbúnaði og byggðaþróun en greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Tilnefningar með nöfnum 600 kvenna frá 131 landi bárust til FAO. Halla Sif var tilnefnd af atvinnuvegaráðuneytinu en öllum aðildarríkjum FAO bauðst að tilnefna. Í bréfi til Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra frá Qu Dongyu framkvæmdastjóra FAO segir að í sínum störfum hafi Halla Sif sýnt afdráttarlausa leiðtogahæfileika og elju við nýsköpun. Ennfremur segir að framlag Höllu Sifjar efli matvælaframleiðslu og landbúnað og bæti lífsskilyrði í dreifbýli. Sá árangur sem Halla Sif hafi sýnt endurspegli þau gildi sem FAO vill draga fram með þessu framtaki á þessu ári en árið 2026 er Alþjóðaár kvenna í landbúnaði. Árangur Höllu Sifjar undirstriki einnig mikilvægt framlag kvenna til uppbyggingar skilvirkari, réttlátari, öflugri og sjálfbærari landbúnað og matvælaframleiðslu.
„Val Höllu Sifjar í þennan úrvalshóp kvenna endurspeglar ekki aðeins hennar eigin árangur, heldur einnig þann metnað sem Ísland hefur sýnt í að styðja konur sem leiðtoga, frumkvöðla, atvinnurekendur og bændur“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. „Árangur Höllu er Íslandi til sóma og sannur innblástur fyrir konur og ungt fólk um allan heim.“
Sérstök athöfn verður haldin á vegum FAO í Róm í október þar sem hinar 100 tilnefndu konur verða heiðraðar.
