
Glæsilegt tæplega 400 fermetra einbýlishús við Dýjagötu 16 í Urriðaholti er komið á sölu. Ásett verð eignarinnar er 349 milljónir króna.
Húsið var reist árið 2015 og er 396,7 fermetrar að stærð. Það stendur á 1.594 fermetra lóð á áberandi stað við Urriðavatn og nýtur óskerts útsýnis yfir vatnið og náttúruna í nágrenninu. Arkitekt hússins er Kári Eiríksson.
Eignin er sögð afar vönduð og eru meðal annars hnotuinnréttingar, náttúrusteinn frá Rein og gólfhiti um allt húsið. Mikil lofthæð og stórir gluggar setja svip sinn á eignina og í rúmgóðri stofu er stór innbyggður arinn.
Frá stofu eru rúmgóðar svalir sem snúa í suður og suðaustur og úr borðstofu er gengið út á svalir til suðvesturs. Á efri hæð hússins eru jafnframt þaksvalir með víðáttumiklu útsýni.
Við húsið er 60 fermetra þrefaldur bílskúr auk sjálfstæðrar aukaíbúðar. Þá vekur athygli að lóðinni fylgir byggingarréttur fyrir allt að 880 fermetra hús, sem býður upp á frekari uppbyggingarmöguleika.
Dýjagata er neðarlega í Urriðaholti, við óbyggt svæði og Urriðavatn. Urriðaholtsskóli er í göngufæri og stutt er í verslanir og þjónustu. Þá eru golfklúbbarnir Oddur, GSE og GKG allir í innan við tíu mínútna akstursfjarlægð.
Seljandi tekur jafnframt fram að hann sé opinn fyrir því að taka aðrar fasteignir upp í kaupverðið.
