1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

3
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

4
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

5
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

6
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

7
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

8
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

9
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

10
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Til baka

Sjaldgæfur sjúkdómur veldur stöðugum brjóstavexti hjá ungri konu

Summer Robert notaði C-skál átta ára gömul vegna hins sjaldgæfs sjúkdóms

Summer Robert
Summer RobertSummer íhugar brjóstaminnkun
Mynd: Instagram-skjáskot

Skoska konan Summer Robert segir sjaldgæfan sjúkdóm hafa gert henni ómögulegt að sinna mörgum hversdagslegum verkefnum eftir að brjóst hennar hættu aldrei að stækka.

Hin 28 ára gamla Robert glímir við sjúkdóm sem kallast macromastia og veldur stjórnlausum og stöðugum brjóstavexti.

Hún segir að hún hafi frá barnsaldri þurft að þola niðrandi augnaráð og kynferðislega hlutgervingu frá ókunnugu fólki vegna ástandsins.

Robert þurfti að nota brjóstahaldara í skálastærð C aðeins átta ára gömul og hefur stóran hluta ævinnar reynt að fela líkama sinn fyrir öðrum, sem hefur reynst erfitt þar sem hún notar nú brjóstahaldara í R-stærð.

Summer Robert
Mynd: Instagram

Þrátt fyrir að vera aðeins um 150 sentímetrar á hæð og með brjóst sem urðu margfalt stærri en D-skálastærð segir hún að það hafi ekki verið fyrr en hún var 25 ára gömul að læknir greindi hvað væri að gerast í líkama hennar.

Summer Robert
Mynd: Instagram

„Ég hafði farið til lækna síðan ég var um 13 eða 14 ára gömul og enginn þeirra greindi þetta. Enginn sagði mér að þetta væri raunverulegur sjúkdómur,“ sagði hún í viðtali við People.

„Þeir sögðu bara að þetta væri kynþroski eða að ég þyrfti að léttast. Það var fáránlegt.“

Fékk útprentaða Wikipedia-síðu

Vegna þess hve sjúkdómurinn er sjaldgæfur segir Robert að fáir læknar hafi þekkt hann eða vitað hvernig ætti að greina hann.

Hún segir jafnvel að einn læknir hafi einfaldlega prentað út Wikipedia-síðu um sjúkdóminn og afhent henni.

Að sögn Robert kemur sjúkdómurinn fram í vaxtarkippum og aðeins á síðasta ári hafi hún farið upp um ellefu brjóstahaldarastærðir.

Hún hefur opnað aðgangssíðu á OnlyFans þar sem hún sýnir líkama sinn, en segir þó að hún íhugi nú mikla brjóstaminnkunaraðgerð vegna þess að ástandið geri henni líkamlega erfitt fyrir að sinna daglegu lífi.

Læknar hafa þó varað hana við því að þó aðgerð gæti létt á vandanum til skamms tíma myndi brjóstavefurinn líklega vaxa aftur.

Segir fólk halda að hún vilji athygli

Robert segir að hún þurfi reglulega að þola áreitni og mismunun vegna ástands síns og að sum fyrirtæki hafi jafnvel vísað henni út vegna þess að starfsfólk taldi hana vera klædda á óviðeigandi hátt.

„Fólk heldur stöðugt að ég vilji sýna brjóstin mín eða sækist eftir athygli,“ segir hún.

„Ég er bara bókstaflega að reyna að vera til og ég er einfaldlega með stór brjóst.“

Hún segir að jafnvel þegar hún klæðist víðum eða látlausum fötum verði hún samt fyrir áreitni og köllum frá fólki á götu úti.

Erfitt að sinna einföldum verkefnum

Robert segir að margt sem flestir taki sem sjálfsögðum hlut sé orðið mjög erfitt fyrir hana.

Til dæmis reynist henni erfitt að finna föt sem passi og hún þurfi oft að nota bakstuðning við hvers kyns hreyfingu, jafnvel þegar hún fari í göngutúr eða taki til heima hjá sér.

„Daglegir hlutir sem maður heldur að séu svo auðveldir eru í raun mjög erfiðir,“ segir hún.

Þrátt fyrir allar áskoranirnar segist hún enn ekki viss um hvort hún vilji fara í aðgerðina.

„Læknirinn sagði að ef þetta væri orðið svo mikið álag gæti ég farið í minnkunaraðgerð,“ segir hún.

Hún vill þó bíða aðeins lengur áður en hún ákveður sig.

„Hann sagði við mig: „Ég mæli með að þú farir í aðgerð, en þú þarft að ákveða hvenær þú getur ekki lengur borið þetta líkamlega.“.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Atlantsolía aldrei grætt meira
Peningar

Atlantsolía aldrei grætt meira

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar
Innlent

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar

Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

„Flakið hefur fundist og leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir“
Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Loka auglýsingu