1
Heimur

Gabriel Ganley fallinn frá aðeins 22 ára að aldri

2
Fólk

Landsliðskona Íslands ólétt

3
Heimur

Kona bitin á baðströnd á Lanzarote

4
Innlent

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili

5
Heimur

Frakki sakaður um kynferðisbrot gegn leikskólabörnum

6
Innlent

Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum

7
Heimur

Fullyrðir að Sarah Ferguson og Diddy hafi verið bólfélagar

8
Heimur

Fimm unglingar drukknuðu í hitabylgjunni um helgina

9
Fólk

Selja hrífandi einbýli í Kópavogi

10
Heimur

Sérfræðingar vara við nýju pungtrendi

Til baka

Skólameistari FS hefur fengið nóg og er hættur

Nemendur ætla að skrópa í skólann og morgun og mótmæla við menntamálaráðuneytið.

Kristján Ásmundsson
Kristján ÁsmundssonKristján er búinn að fá nóg
Mynd: FSU

Kristján Ásmundsson skólameistari FS hefur sagt starfi sínu lausu, þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af fimm ára skipunartíma sínum. Með því lýkur hann tæplega 40 ára starfsferli við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, þar sem hann hóf störf árið 1986. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu skólans.

Hann greindi starfsfólki frá ákvörðun sinni á fundi í morgun og vöktu tíðindin sterk viðbrögð. Margir urðu slegnir og sumir felldu tár. Kristján hefur um árabil verið farsæll stjórnandi og notið mikillar virðingar innan skólans.

Að sögn Kristjáns átti hann fund með fulltrúum menntamálaráðuneytisins fyrr um daginn þar sem rætt var um fyrirhugaða viðbyggingu við skólann. Sú framkvæmd hefur verið til umræðu í tvö ár, en á fundinum kom fram að enn liggja ekki fyrir neinar ákvarðanir um tímasetningu eða framgang verkefnisins.

Því er ljóst, samkvæmt tilkynningunni, að skólinn þarf áfram að búa við þröngan húsakost. Kennsla fer nú meðal annars fram í þremur gámum og í leiguhúsnæði á tveimur stöðum í bæjarfélaginu. Þá hefur einnig þurft að breyta geymslum í kennslurými og aðlaga bóknámsstofur að verklegri kennslu.

Skólinn er fjölbreyttur og gegnir mikilvægu hlutverki á Suðurnesjum, meðal annars með stórri starfsbraut og nemendum af ólíkum menningar- og tungumálabakgrunni. Hins vegar er aðstöðuleysi nú farið að hafa veruleg áhrif á starfsemina, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Kristján segir að nú sé komið nóg og að hann sjái ekki fram á frekari árangur í málinu. Hann harmar jafnframt skort á áhuga stjórnvalda á málefnum skólans og telur það hafa haft áhrif á ákvörðun sína um að hætta.

Nemendur skipuleggja mótmæli

Tristan Einarsson, formaður Nemendafélags FS segir í samtali við Mannlíf að mikil óánægja sé með ástandið í skólanum og að nemendur standi við bakið á Kristjáni.

„Nemendur eru heldur betur óánægðir. Menntamálaráðuneytið er ekki bara að gefa Kristjáni skólameistara, heldur nemendum öllum, blauta tusku í andlitið.“

Segir Tristan að fyrir löngu sé kominn tími á að stækka skólann og nefnir sem dæmi að kofar sem nemendur á húsasmíðabraut skólans smíðuðu, séu meðal annars notaðir undir kennslustofur og að bókasafnið hafi verið minnkað.

Að sögn Tristan ætla nemendur að skrópa í skólann á morgun og mótmæla við menntamálaráðuneytið.

„Við ætlum að ganga út úr skólanum á eftir og hvetja fólk til að mæta ekki í skólann á morgun.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Stórfelld hóteluppbygging fyrirhuguð í Ölfusi
Myndir
Peningar

Stórfelld hóteluppbygging fyrirhuguð í Ölfusi

Eigendur Hjarðarbóls leita nú að meðfjárfestum og samstarfsaðilum.
Rifjar upp óvenjulega undirritun Sigmundar Davíðs
Pólitík

Rifjar upp óvenjulega undirritun Sigmundar Davíðs

Hannes Valle fær þrjú ár fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni
Innlent

Hannes Valle fær þrjú ár fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni

Möguleg handsprengja fannst við leikvöll í Svíþjóð
Heimur

Möguleg handsprengja fannst við leikvöll í Svíþjóð

Liðsmaður öfgasamtaka dæmdur í fangelsi
Heimur

Liðsmaður öfgasamtaka dæmdur í fangelsi

Sex ára stúlka myrt í tjaldbúðum
Heimur

Sex ára stúlka myrt í tjaldbúðum

Selja íbúð í eftirminnilegu húsi á Akureyri
Myndir
Fólk

Selja íbúð í eftirminnilegu húsi á Akureyri

Segir Þorgerði sýna taugaveiklun
Innlent

Segir Þorgerði sýna taugaveiklun

Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum
Innlent

Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum

Segir Mossad hafa hótað sér vegna rannsóknar á þjóðarmorðinu
Heimur

Segir Mossad hafa hótað sér vegna rannsóknar á þjóðarmorðinu

Fimm unglingar drukknuðu í hitabylgjunni um helgina
Heimur

Fimm unglingar drukknuðu í hitabylgjunni um helgina

Innlent

Hannes Valle fær þrjú ár fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni
Innlent

Hannes Valle fær þrjú ár fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni

Brotin fóru fram í leikskóla
Helga Vala hamast gegn andstöðu við skjólshús Geðhjálpar
Innlent

Helga Vala hamast gegn andstöðu við skjólshús Geðhjálpar

Segir Þorgerði sýna taugaveiklun
Innlent

Segir Þorgerði sýna taugaveiklun

Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum
Innlent

Óvenjulegur þjófnaður í Laugardalnum

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili
Innlent

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili

Loka auglýsingu