
Kristján Ásmundsson skólameistari FS hefur sagt starfi sínu lausu, þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af fimm ára skipunartíma sínum. Með því lýkur hann tæplega 40 ára starfsferli við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, þar sem hann hóf störf árið 1986. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu skólans.
Hann greindi starfsfólki frá ákvörðun sinni á fundi í morgun og vöktu tíðindin sterk viðbrögð. Margir urðu slegnir og sumir felldu tár. Kristján hefur um árabil verið farsæll stjórnandi og notið mikillar virðingar innan skólans.
Að sögn Kristjáns átti hann fund með fulltrúum menntamálaráðuneytisins fyrr um daginn þar sem rætt var um fyrirhugaða viðbyggingu við skólann. Sú framkvæmd hefur verið til umræðu í tvö ár, en á fundinum kom fram að enn liggja ekki fyrir neinar ákvarðanir um tímasetningu eða framgang verkefnisins.
Því er ljóst, samkvæmt tilkynningunni, að skólinn þarf áfram að búa við þröngan húsakost. Kennsla fer nú meðal annars fram í þremur gámum og í leiguhúsnæði á tveimur stöðum í bæjarfélaginu. Þá hefur einnig þurft að breyta geymslum í kennslurými og aðlaga bóknámsstofur að verklegri kennslu.
Skólinn er fjölbreyttur og gegnir mikilvægu hlutverki á Suðurnesjum, meðal annars með stórri starfsbraut og nemendum af ólíkum menningar- og tungumálabakgrunni. Hins vegar er aðstöðuleysi nú farið að hafa veruleg áhrif á starfsemina, að því er fram kemur í tilkynningunni.
Kristján segir að nú sé komið nóg og að hann sjái ekki fram á frekari árangur í málinu. Hann harmar jafnframt skort á áhuga stjórnvalda á málefnum skólans og telur það hafa haft áhrif á ákvörðun sína um að hætta.
Nemendur skipuleggja mótmæli
Tristan Einarsson, formaður Nemendafélags FS segir í samtali við Mannlíf að mikil óánægja sé með ástandið í skólanum og að nemendur standi við bakið á Kristjáni.
„Nemendur eru heldur betur óánægðir. Menntamálaráðuneytið er ekki bara að gefa Kristjáni skólameistara, heldur nemendum öllum, blauta tusku í andlitið.“
Segir Tristan að fyrir löngu sé kominn tími á að stækka skólann og nefnir sem dæmi að kofar sem nemendur á húsasmíðabraut skólans smíðuðu, séu meðal annars notaðir undir kennslustofur og að bókasafnið hafi verið minnkað.
Að sögn Tristan ætla nemendur að skrópa í skólann á morgun og mótmæla við menntamálaráðuneytið.
„Við ætlum að ganga út úr skólanum á eftir og hvetja fólk til að mæta ekki í skólann á morgun.“

Komment