1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

10
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

Til baka

Oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði á lista yfir talsmenn hælisleitenda

Telur byrði Hafnarfjarðar meiri í málaflokknum en hjá öðrum sveitarfélögum

Einar Geir
Einar Geir ÞorsteinssonEr oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði.
Mynd: Aðsend

Einar Geir Þorsteinsson, lögmaður og oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum, er skráður sem talsmaður hælisleitenda á Íslandi.

Kemur þetta fram í gögnum frá Útlendingastofnun sem merkt eru 9. apríl 2026 en til þess að vera á listanum þarf sérstaklega að sækja um það.

Miðflokkurinn hefur undanfarin ár verið gagnrýndur harðlega fyrir orðræðu sína í garð útlendinga og hælisleitenda og hafa sumir sagt flokkinn ýta undir kynþáttafordóma en flokksmenn hafa neitað fyrir slíkt.

Hlutverk talsmanns samkvæmt Útlendingastofnun er:

Sá sem talar máli umsækjanda um alþjóðlega vernd hér á landi og gætir hagsmuna hans við meðferð máls gagnvart íslenskum stjórnvöldum á meðan mál hans er til meðferðar hjá Útlendingastofnun og eftir atvikum kærunefnd útlendingamála.

Til þess að fá skráningu á listanum þarf talsmaður að vera lögfræðingur með þekkingu á málum er lúta að alþjóðlegri vernd og flóttafólki, hafa lokið embættisprófi eða grunn- og framhaldsprófi í lögfræði, hafa gott vald á íslensku í ræðu og riti og hafa reynslu og haldbæra þekkingu af stjórnsýslurétti.

Á núverandi lista skráðir tæplega 130 manns.

Mannlíf ræddi við Einar Geir um listann, stefnu Miðflokksins og komandi sveitarstjórnarkosningar.

„Þetta var þannig að þegar ég var í lögmannsprófi til að öðlast lögmannsréttindi þá var fólk hvatt til að skrá sig á listann og það er svo sem ekkert við það að setja út á, myndi ég segja,“ segir Einar um veru sína á listanum.

„Ég hef tekið að mér eitt mál og þannig öðlaðist ég mikla innsýn í þennan málaflokk, hver staðan er í þessu, allar þessar fjárveitingar sem fara í þetta og þessi opni tékki sem talsmenn eru með þannig að ég myndi bara segja að það sé gott að hafa þessa innsýn.“

Að sögn Einars þurfti skjólstæðingur hans að bíða mjög lengi í kerfinu.

„Ég mætti þarna á einn fund af því var talsmaður þessa einstaklings og það gerðist ekkert í fleiri fleiri mánuði og ég hugsaði „Hvernig getur þetta kerfi gengið upp?“ því þarna er einstaklingur sem sækir um vernd, eða hvað sem það var. Ég man ekki alveg hver umsóknin var og síðan dagar þessi einstaklingur uppi í marga marga mánuði að bíða eftir niðurstöðu.“

Varðandi stefnu flokksins í málefnum hælisleitenda í Hafnarfirði ítrekar oddvitinn að þetta sé fyrst og fremst peningamál og snúist ekki um andúð gegn erlendu fólki.

„Þetta snýst um það að byrði Hafnarfjarðar er mun meiri en annarra sveitarfélaga. Þetta snýst ekki um andúð á útlendingum eða hvernig sem þetta er sett upp, þetta snýst um kostnaðarliðinn, þetta snýst um jafnræði milli sveitarfélaga og sanngirni í þessum málaflokki,“ segir Einar.

Varðandi komandi sveitarstjórnarkosningar segir Einar að það sé góð stemming í Hafnarfirði fyrir Miðflokknum og vonast flokkurinn til að ná að minnsta kosti tveimur mönnum inn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist
Heimur

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku
Myndband
Heimur

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku

Helgi í Góu verður ríkari
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

Framkvæmdastjóri sýknaður af fjárdrætti eftir gagnrýni dómsins á rannsóknina
Innlent

Framkvæmdastjóri sýknaður af fjárdrætti eftir gagnrýni dómsins á rannsóknina

Móðir vill að horfinn sonur verði úrskurðaður látinn
Innlent

Móðir vill að horfinn sonur verði úrskurðaður látinn

Skrifuðu gróf ummæli undir fullu nafni en vildu ekki ræða þau
Innlent

Skrifuðu gróf ummæli undir fullu nafni en vildu ekki ræða þau

Garðabæjardraumurinn til sölu með heitum og köldum potti
Myndir
Fólk

Garðabæjardraumurinn til sölu með heitum og köldum potti

Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

„Ríkisstjórnin hamast við að moka flórinn eftir þessa sóða, en þeir standa á hliðarlínunni hrópandi ókvæðisorð“
Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Loka auglýsingu