
Móðir manns sem hvarf árið 2023 hefur farið fram á að Héraðsdómur Austurlands kveði upp dóm um að sonur hennar skuli talinn látinn.
Fram kemur í stefnu sem birt hefur verið í Lögbirtingablaðinu að maðurinn hafi horfið sjónum manna árið 2023. Lögreglu var tilkynnt um hvarfið eftir að leigusali hans hafði ekki orðið hans var um nokkurt skeið.
Í kjölfarið hófst umfangsmikil leit að manninum. Lögregla, björgunarsveitir, Landhelgisgæslan og kafarar sérsveitar ríkislögreglustjóra tóku þátt í leitinni, sem fór fram í lofti, á landi og í sjó. Hún bar ekki árangur og lögregla lauk síðar rannsókn málsins þar sem engar nýjar vísbendingar höfðu komið fram um afdrif mannsins.
Móðir mannsins telur engar líkur á öðru en að hann sé látinn og segir formlega niðurstöðu jafnframt geta veitt fjölskyldunni ákveðna lúkningu.
Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um dvalarstað eða afdrif mannsins eru hvattir til að koma þeim á framfæri við Héraðsdóm Austurlands.