1
Pólitík

Færsla Jóns Péturs um ungar konur vekur úlfúð

2
Innlent

Innkalla núðlur vegna aðskotaefna

3
Heimur

14 látnir eftir flugslys

4
Heimur

Fékk líkamsleifar eiginmannsins og sonar í skókössum

5
Pólitík

Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi grunaður um lögbrot

6
Innlent

Salmonella í nautahakki

7
Fólk

Útsýnishöll í Grafarvogi sett á sölu

8
Innlent

Maður fannst látinn við Háafoss

9
Landið

Þrjótur stórskemmdi golfvöll á Akureyri

10
Minning

Sorg í Danmörku eftir andlát Íslendings

Til baka

Skrefi nær að banna gjaldtöku fyrir handfarangur

Evrópusambandið ræðir að banna flugfélögum að rukka fyrir handafarangur

Icelandair Flugvél flug
Flugvél IcelandairSamþykki Evrópuþingið tillöguna mega íslensk flugfélög ekki rukka fyrir handfarangur.
Mynd: Icelandair

Evrópskir þingmenn þrýstu á þriðjudag á að flugfélögum yrði bannað að rukka farþega fyrir lítinn handfarangur, en flugiðnaðurinn mótmælir harðlega.

Samgöngunefnd Evrópuþingsins samþykkti tillögu sem myndi leyfa ferðamönnum að taka með sér lítinn hlut til persónulegra nota, svo sem handtösku eða bakpoka, ásamt handfarangri allt að sjö kíló að þyngd, án aukagjalds.

Markmiðið aðgerðarinnar var að spara farþegum „óréttmætan aukakostnað“, sagði Matteo Ricci, þingmaður úr miðju-vinstri flokki og aðalflutningsmaður frumvarpsins.

Mörg lágfargjaldaflugfélög leyfa aðeins einn lítinn hlut til persónulegra nota með keyptum flugmiða, og rukka aukalega fyrir annan handfarangur.

Flugfélög Evrópu (A4E), hagsmunasamtök í greininni, fordæmdu tillöguna og sögðu að hún myndi leiða til hærri fargjalda og aukins kostnaðar fyrir þau sem ferðast með léttan farangur.

„Að þvinga fram innifalinn handfarangur… skyldar farþega til að greiða fyrir þjónustu sem þeir vilja kannski ekki né þurfa“ sagði Ourania Georgoutsakou, framkvæmdastjóri A4E, fyrir atkvæðagreiðsluna.

Aðgerðin, sem myndi ná til allra fluga sem fara eða koma innan ríkja Evrópusambandsins og EES, var samþykkt sem hluti af pakka breytingatillagna að reglugerðum um réttindi farþega sem framkvæmdastjórn ESB lagði fram.

Samgöngunefndin samþykkti einnig að innleiða sameiginlegt eyðublað fyrir beiðnir um bætur og endurgreiðslur, ásamt skilgreindum lista yfir óvenjulegar aðstæður, svo sem náttúruhamfarir eða stríð, þar sem flugfélögum er heimilt að neita um slíkar bætur.

Tillögurnar þurfa næst að fara í atkvæðagreiðslu hjá þinginu.

Búist er við breytingum þar sem tillögurnar þurfa að vera samræmdar og samþykktar af öllum aðildarríkjum áður en þær geta tekið gildi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Fórnarlamb flutt á sjúkrahús
Innlent

Fórnarlamb flutt á sjúkrahús

Færsla Jóns Péturs um ungar konur vekur úlfúð
Pólitík

Færsla Jóns Péturs um ungar konur vekur úlfúð

Landsliðskona opnar sig um erfið veikindi og fósturmissi
Heimur

Landsliðskona opnar sig um erfið veikindi og fósturmissi

Breska lögreglan rannsakar dauðsföll tengd „sjálfsvígspökkum“
Heimur

Breska lögreglan rannsakar dauðsföll tengd „sjálfsvígspökkum“

Franska konan ákærð fyrir að myrða dóttur sína
Innlent

Franska konan ákærð fyrir að myrða dóttur sína

Þrjótur stórskemmdi golfvöll á Akureyri
Myndir
Landið

Þrjótur stórskemmdi golfvöll á Akureyri

Dylan Carter úr The Voice er látinn
Heimur

Dylan Carter úr The Voice er látinn

Innkalla núðlur vegna aðskotaefna
Innlent

Innkalla núðlur vegna aðskotaefna

Segir Sjálfstæðismenn í mótsögn við sig sjálfa
Pólitík

Segir Sjálfstæðismenn í mótsögn við sig sjálfa

Norska lögreglan vinnur að rannsókn tengdri Epstein
Heimur

Norska lögreglan vinnur að rannsókn tengdri Epstein

Hundagelt með dýrum afleiðingum
Heimur

Hundagelt með dýrum afleiðingum

23 börnum rænt af byssummönnum
Heimur

23 börnum rænt af byssummönnum

Heimur

Landsliðskona opnar sig um erfið veikindi og fósturmissi
Heimur

Landsliðskona opnar sig um erfið veikindi og fósturmissi

„Við gengum í gegnum þrjá til fjóra daga af hreinu helvíti“
Hundagelt með dýrum afleiðingum
Heimur

Hundagelt með dýrum afleiðingum

Breska lögreglan rannsakar dauðsföll tengd „sjálfsvígspökkum“
Heimur

Breska lögreglan rannsakar dauðsföll tengd „sjálfsvígspökkum“

Dylan Carter úr The Voice er látinn
Heimur

Dylan Carter úr The Voice er látinn

Norska lögreglan vinnur að rannsókn tengdri Epstein
Heimur

Norska lögreglan vinnur að rannsókn tengdri Epstein

Loka auglýsingu