Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

„Skrímslið í Binley Woods“ sést aftur og aftur

Að sögn lögreglunnar hafa tilkynn­ing­arnar einkum borist frá fólki sem hefur verið á göngu síðla kvölds

Coventry
Coventry Liggur nærri Binley Woods Mynd: Si Chun Lam/Wikipedia

Margar tilkynningar hafa borist um dular­fullt, stórt og svart kattardýr sem íbúar nærri Coventry á Englandi segjast hafa séð ítrekað undan­farna daga en fjöl­miðlar á svæðinu hafa greint frá málinu. Dýrið hefur fengið viðurnefnið „Catfoot“ og er jafnframt kallað „Beast of Binley Woods“.

Lögregla segir að nokkrir íbúar á Binley Woods svæðinu hafi greint frá því að hafa séð dýrið síðastliðna viku. Sjónar­vottar lýsa því sem stóru og dökku kattar­dýri sem haldi sig í nokkurri fjarlægð frá fólki.

Að sögn lögreglunnar hafa tilkynningarnar einkum borist frá fólki sem hefur verið á göngu síðla kvölds. Dýrið hafi yfirleitt haldið sig fjarri en hlaupið hratt á brott og inn í gróður þegar vart hefur orðið við það.

Lögreglu­menn á svæðinu segja að nú hafi nokkrir sjónar­vottar greint frá sams konar dýri og komið upplýsingunum á framfæri við lögreglu. Fólki sem telur sig hafa séð dýrið hefur verið bent á að tilkynna atvikið til samtaka sem sérhæfa sig í upplýsingum um stór kattardýr í Bretlandi.

Ekki liggur fyrir hvaða dýr um ræðir og engar ljós­myndir eða myndskeið hafa verið birt sem staðfesta að stórt villt kattardýr sé á ferðinni.

Íbúar eru hvattir til að nálgast ekki dýrið verði þeir þess varir. Lögregla segir ljós­myndir, myndskeið og nákvæmar upplýsingar um stað og stund geta hjálpað sérfræðingum við að leggja mat á tilkynningarnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs