1
Landið

Birti myndband af „fávita“ sem stofnaði fjölda manns í lífshættu í umferðinni

2
Landið

„Fávitinn“ á pallbílnum svarar fyrir sig

3
Heimur

Victoria Beckham sögð niðurbrotin

4
Heimur

Áhrifavaldur sem lést eftir heimafæðingu hafnaði ítrekað læknisaðstoð

5
Landið

Óska eftir þremur prestum

6
Innlent

Ógn í Árbænum

7
Fólk

Atli Fannar biðst aftur afsökunar

8
Fólk

Brautryðjandi selur íbúð í Grafarvogi

9
Heimur

Aðgerð Mette-Marit heppnaðist vel

10
Heimur

McDonald's tekið á teppið í Þýskalandi

Til baka

Söguleg breyting á 17. júní - frá fjörugum götudönsum í hoppukastala

„17. júní er ekki nema svipur hjá sjón frá því sem eitt sinn var“

Egill Helgason

Hátíðarhöld á þjóðhátíðardeginum 17. júní hafa tekið stórstígum breytingum á síðustu áratugum. Þar sem áður ríkti mikil stemning, götudansar og prúðbúinn mannfjöldi í miðbænum, einkennist dagurinn nú fremur af fámennari barnahátíðum og færri viðburðum á kvöldin. Einn af þeim sem kallar eftir því að lífi sé blásið í þessa sögufrægu hátíð á nýjan leik er fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason í pistli á Facebook síðu sinni.

„Ég á minningu um að hafa fengið sykurhúðað epli á 17. júní. Þetta var tíminn þegar öll börn voru prúðbúin á þjóðhátíðardeginum. Litlir strákar voru klæddir eins og kallar, tískan var að setja á þá týrólahatta með fjöður. Ég slapp sem betur fer við hattinn. Sumar stelpur voru í upphlut og flestar með slaufu í hárinu og í sportsokkum eins og það var kallað.

Það var miklu meira að gerast á 17. júní þá og maður hlakkaði til dagsins. Í bænum úði og grúði af sölutjöldum frá íþróttafélögum og félagagasamtökum. Það voru skrúðgöngur og stór skemmtun í Miðbænum. Ekki man ég eftir því þegar Sinfóníuhljómsveitin spilaði á Austurvelli á 17. júní, það er fyrir mína tíð, en ég man eftir gríðarlega fjölmennum samkomum Arnarhóli. Bessa Bjarnasyni og Árna Tryggsyni á sviðinu í gervi Mikka refs og Lilla Klifurmúsar. En Baldur og Konni voru fyrir minn tíma. (sjá mynd)“

Arnarhóll
Skjáskot/Þjóðminjasafn Íslands
Mynd: Skjáskot/Þjóðminjasafn Íslands

Tímarnir breytast: Þróun hátíðarinnar samkvæmt Agli

  • Blómatíminn á 20. öld: Börn mættu prúðbúin í miðbæinn, margir strákar í týrólahöttum og stelpur í upphlut eða sportsokkum. Sölutjöld íþróttafélaga úðuðu og grúðu um allan bæ.
  • Skemmtanahald á sviði: Gríðarlegur mannfjöldi safnaðist saman á Arnarhóli þar sem þjóðþekktir leikarar, eins og Bessi Bjarnason og Árni Tryggvason í gervi persóna úr Kardemommubænum, skemmtu fólki.
  • Götudansarnir frægu: Gömlu dansarnir fóru fram við Alþingishúsið, dægurtónlist var á Lækjartorgi og unglingar söfnuðust saman við Morgunblaðshúsið þar sem stórar hljómsveitir eins og Flowers spiluðu.

„Um kvöldið var dansað í Miðborginni. Ef ég man rétt voru gömlu dansarnir á planinu við Alþingishúsið, gjarnan hljómsveit Guðjóns Matthíassonar. Léttar hljómsveitir eins og Svavars Gests og Ólafs Gauks voru Lækjartorgi en unglingarnir fengu sína músík framan við Morgunblaðshúsið.Ég var miðbæjarbarn, átti heima við gamla kirkjugarðinn og var farinn að fara einn í bæinn 6-7 ára gamall. Ég man sérstaklega vel eftir hljómsveitinni Flowers að spila við Mogganhúsið. Þar voru í hópi musíkanta Björgvin Halldórsson, Karl Sighvatsson og Gunnar Jökull. Mér fannst það stórkostleg upplifun.

Það var vesen með fyllerí, vissulega. Keyrði víst um þverbak einhver ár og ég barnið man eftir blindfullum unglingum. Nýstúdentar útskrifuðust 17. júní, settu svip á bæinn og voru glaðir og reifir.Svo ákveðið að grípa í taumana og þá var beitt heldur betur skringilegum aðferðum. Það var mikið um boð og bönn á Íslandi á þessum árum. Veitingar utandyra þekktust til dæmis ekki, það var harðbannað.“

Forsjárhyggja og boð og bönn

Á sjöunda og áttunda áratugnum gripu yfirvöld til róttækra aðgerða til að takmarka drykkju og mannsöfnuð í miðbænum. Hátíðarhöldin voru meðal annars flutt tímabundið inn á Laugardalsvöll í tvö ár, þar sem dagskráin fólst í ávörpum og íþróttamótum, sem mörgum þótti hundleiðinlegt. Seinna voru dansleikir kvöldsins færðir í skólaportin til að dreifa mannfjöldanum.

„Í tvö ár á sjöunda áratugnum voru hátíðarhöldin færð inn í Laugardal. Reykvíkingum var smalað á Laugardalsvöllinn, látnir hlusta þar á ávarp fjallkonunar og horfa á kúluvarp. Svo var sundmót í nýju Laugardagslauginni. Ég man að þetta var alveg hundleiðinlegt. Þetta var á tíma þegar borgarstjórninni var í raun meinilla við Miðbæinn; vildi helst setja hann niður í Kringlumýri og kalla Nýja Miðbæinn. Forsjárhyggjan reið heldur ekki við einteyming. Eftir 1970 voru dansleikirnir að kvöldi 17. júní færðir á lóðir skólanna í bænum til að koma í veg fyrir mannsöfnuð í Miðborginni. Það var líka hundleiðinlegt, engin stemming þótt ágætar hljómsveitir træðu upp stundum upp í skólaportunum.

Svo var aftur farið með hátíðina niður í Miðbæ. Það gekk mestanpart slysalaust. Borgarbúar fjölmenntu á bæði dag- og kvöldskemmtanir og það var minna um fyllerí en áður. En einhvern veginn fór að fjara undan 17. júní og þegar komið var fram á nýja öld var líkt og áhuginn á hátíðinni væri hverfandi. Áherslan hjá borgaryfirvöldum færðist yfir á Gay Pride og Menningarnótt en 17. júní sat á hakanum. Það var látið nægja að halda dálitla hátíð fyrir börnin – nokkra hoppukastala – en kvöldskemmtanirnar voru með öllu aflagðar. Þannig er það nú og 17. júní er ekki nema svipur hjá sjón frá því sem eitt sinn var. Ég fylgdist með frekar fámennri skrúðgöngu fara niður Laugaveginn. Kannski var gleðilegast við gönguna hversu margir innflytjendur voru í henni – með íslenska fána. En það heyrðist ekki mikil tónlist. Bara ein lúðrasveit fremst og þátttakendur voru ekki ýkja líflegir.“

Egill kallar eftir breytingum og segir að lokum.

„Væri kannski vert að gera betur á þessum hátíðisdegi? Hafa meira fjör? Fjölbreyttari skemmtun? Fyrir unga og aldna? Ekki bara vegna þess að hann er dagur þjóðarinnar heldur lika vegna þess að gott er að fagna saman snemmsumars þegar landið er orðið grænt og ljúft.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Michelle Obama bjargaði lífi manns
Heimur

Michelle Obama bjargaði lífi manns

Atvikið vakti athygli
Hótelstarfsmaður á Kanarí gripinn við að stela skartgripum gesta
Heimur

Hótelstarfsmaður á Kanarí gripinn við að stela skartgripum gesta

„Einmanaleiki jafn hættulegur og að smóka fimmtán rettur á dag“
Innlent

„Einmanaleiki jafn hættulegur og að smóka fimmtán rettur á dag“

Barnastjarnan Daveigh Chase látin aðeins 35 ára gömul
Heimur

Barnastjarnan Daveigh Chase látin aðeins 35 ára gömul

Málmhausar skelltu sér í golf
Myndir
Fólk

Málmhausar skelltu sér í golf

Verðmunur á einstökum matvörum meiri en tvöfaldur
Innlent

Verðmunur á einstökum matvörum meiri en tvöfaldur

Sunnuvegshöll komin á sölulista
Myndir
Fólk

Sunnuvegshöll komin á sölulista

Lofa langlífi með grískri lífsspeki
Fólk

Lofa langlífi með grískri lífsspeki

„Fávitinn“ á pallbílnum svarar fyrir sig
Myndband
Landið

„Fávitinn“ á pallbílnum svarar fyrir sig

Eldur kviknaði í dælubúnaði við bensínstöð
Innlent

Eldur kviknaði í dælubúnaði við bensínstöð

Birti myndband af „fávita“ sem stofnaði fjölda manns í lífshættu í umferðinni
Myndband
Landið

Birti myndband af „fávita“ sem stofnaði fjölda manns í lífshættu í umferðinni

Áhrifavaldur sem lést eftir heimafæðingu hafnaði ítrekað læknisaðstoð
Heimur

Áhrifavaldur sem lést eftir heimafæðingu hafnaði ítrekað læknisaðstoð

Innlent

„Einmanaleiki jafn hættulegur og að smóka fimmtán rettur á dag“
Innlent

„Einmanaleiki jafn hættulegur og að smóka fimmtán rettur á dag“

Maður er manns gaman
Verðmunur á einstökum matvörum meiri en tvöfaldur
Innlent

Verðmunur á einstökum matvörum meiri en tvöfaldur

Söguleg breyting á 17. júní - frá fjörugum götudönsum í hoppukastala
Innlent

Söguleg breyting á 17. júní - frá fjörugum götudönsum í hoppukastala

Eldur kviknaði í dælubúnaði við bensínstöð
Innlent

Eldur kviknaði í dælubúnaði við bensínstöð

Loka auglýsingu