1
Peningar

Icelandair skerðir þjónustu við farþega

2
Landið

Bergey valin fram yfir tíu aðra umsækjendur

3
Pólitík

Dóttir fyrrverandi forsætisráðherra aðstoðar núverandi borgarstjóra

4
Fólk

Níu matvæli sem aldrei ætti að gefa köttum

5
Fólk

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu

6
Fólk

Einmanaleg glíma þeirra sem rjúfa fjölskyldubönd

7
Pólitík

Þórður Snær hvetur Íslendinga til að hlusta á Bjarna Ben

8
Innlent

Dæmdir fyrir að stela milljónaskartgripum í Hafnarfirði

9
Fólk

Draumaraðhús í Garðabæ sett á sölu

10
Innlent

Sækir gegn íslenska ríkinu en varar við ESB

Til baka

Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi

„Farðu og fremdu sjálfsvíg, fífl.“

Dauðafæri
DauðafæriEnglendingar sluppu með skrekkinn
Mynd: Skjáskot

Norski landsliðsmaðurinn Alexander Sørloth og fjölskylda hans hafa orðið fyrir grófu hatri og líflátshótunum á samfélagsmiðlum eftir að hann ákvað að skjóta sjálfur í stað þess að senda boltann á Erling Braut Haaland í tapinu gegn Englandi í átta liða úrslitum HM.

Atvikið átti sér stað þegar staðan var 1:0 fyrir Noreg undir lok fyrri hálfleiks. Norðmenn komust tveir gegn einum í skyndisókn þar sem Sørloth var með boltann og Haaland hljóp óvaldaður honum til vinstri. John Stones var eini varnarmaður Englendinga.

Sørloth valdi að reyna sjálfur að skora en skot hans var varið. Tveimur mínútum síðar jafnaði England leikinn og vann síðar.

Eftir leikinn sagðist Sørloth vera niðurbrotinn.

„Þetta er erfitt. Svona augnablik eru þau sem maður vildi óska að hefðu farið betur. Ég veit að ný tækifæri munu koma, en það er auðvitað sárt þegar þetta gerist á stærsta sviðinu og við erum að berjast um sæti í undanúrslitum HM,“ sagði hinn þrítugi framherji.

Unnustan birtir líflátshótanir

Í dag steig unnusta hans, Lena Selnes, fram á Instagram þar sem hún birti skjáskot af fjölda hatursfullra skilaboða sem henni bárust.

„HM og fótboltinn færa mikla gleði, en líka mikið hatur. Ég vildi í raun ekki gefa þessu athygli, en eftir svona athugasemdir fannst mér ég þurfa þess,“ skrifaði hún.

Meðal skilaboðanna voru:

  • „Farðu og fremdu sjálfsvíg, fífl.“
  • „Þú verður drepinn.“

Selnes hvatti fólk til að hugsa sig tvisvar um áður en það sendi slík skilaboð.

„Ég vona að allir hugsi sig aðeins betur um áður en þeir skrifa svona, sama hver staðan er.“

Á Instagram-síðu Sørloth hafa einnig safnast yfir 100.000 athugasemdir við nýjustu færslu hans, flestar á ensku eða öðrum erlendum tungumálum.

Solbakken: „Sorglegt“

Ståle Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs, fordæmdi hótanirnar þegar hann ræddi við fjölmiðla í Miami.

„Þetta er heimurinn sem við búum í og tilfinningarnar verða sterkar. Þetta er sorglegt. Það er í raun ekkert meira um það að segja,“ sagði hann.

Hann sagðist jafnframt hafa ráðlagt leikmönnum sínum að halda sig frá samfélagsmiðlum.

„Ég segi strákunum að halda sig frá samfélagsmiðlum, sérstaklega á svona dögum. Þótt þar sé oftast jákvætt efni á maður ekki að sækja orkuna sína þangað.“

Ætlaði að senda á Haaland

Sørloth útskýrði ákvörðun sína eftir leikinn.

„Ég tók fyrstu snertingu og leit upp. Þá sá ég að John Stones lokaði sendingarleiðinni. Ég tók aðra snertingu og hún varð of löng.“

Hann sagði markmiðið frá upphafi hafa verið að senda boltann á Haaland.

„Ég ætlaði að færa boltann til hægri eða vinstri svo Stones þyrfti að hreyfa sig og þá senda á Erling. Það eina sem ég vildi gera í þessari stöðu var að finna Erling. En mér fannst sendingarleiðin lokast og þá ákvað ég að skjóta.“

Harðlega gagnrýndur

Gary Neville gagnrýndi ákvörðun Sørloth harðlega í útsendingu ITV.

„Hann átti einfaldlega að senda. Hvað var hann að gera? Hann var með besta leikmann heims tilbúinn og valdi samt að skjóta sjálfur.“

Alan Shearer tók í sama streng hjá BBC.

„England slapp með skrekkinn. Sørloth átti að senda boltann á Haaland sem var á fullri ferð. Hann gerði það ekki og keyrði einfaldlega beint inn í vörnina.“

Fyrrverandi landsliðsmarkvörðurinn Paul Robinson sagði að England hefði fengið „óvænta líflínu“.

Sérfræðingar verja Sørloth

Ekki eru þó allir sammála gagnrýninni.

Kristoffer Løkberg, sérfræðingur hjá norska ríkissjónvarpinu NRK, segir sjónvarpsupptökur gefa ranga mynd af aðstæðunum.

„Þetta lítur miklu auðveldara út á myndskeiðum og kyrrmyndum en þetta var í raun og veru. Kyrrmyndin sem fór um netið er tekin á nákvæmlega rétta augnablikinu, en staðan var mun flóknari en hún virðist.“

Hann telur jafnframt að Sørloth hafi verið lykilmaður í sóknarleik Noregs þrátt fyrir mistökin.

Samstarfskona hans hjá NRK, Andrine Hegerberg, telur hins vegar að Sørloth hafi einfaldlega hikað of lengi.

„Þegar hann tók þessa auka snertingu var færið farið. Hann hefði átt að senda boltann miklu fyrr. Ég held að Alex Sørloth muni sjálfur hugsa lengi um þetta augnablik.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Líkfundur við Austurbæjarskóla
Innlent

Líkfundur við Austurbæjarskóla

Lögregla vinnur nú að því að bera kennsl á hinn látna
Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta
Innlent

Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta

„Okkur þykir það mjög leitt“
Innlent

„Okkur þykir það mjög leitt“

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt
Innlent

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans
Heimur

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans

Limminnsti maður heims fer í aðgerð
Heimur

Limminnsti maður heims fer í aðgerð

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“
Peningar

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum
Heimur

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál
Innlent

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál

Fyrrum bæjarfulltrúi gerður að framkvæmdastjóra
Peningar

Fyrrum bæjarfulltrúi gerður að framkvæmdastjóra

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi
Myndband
Innlent

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda
Heimur

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu
Myndir
Fólk

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu

Sport

Sniðganga HM samþykkt á neyðarfundi UEFA
Sport

Sniðganga HM samþykkt á neyðarfundi UEFA

„Heimsmeistaramótið er ekki til sölu.“
Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi
Sport

Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi

Elsti atvinnuknattspyrnumaður heims skoraði sitt fyrsta mark í tæp fjögur ár
Myndband
Sport

Elsti atvinnuknattspyrnumaður heims skoraði sitt fyrsta mark í tæp fjögur ár

Íslandsmótið í sjósundi 2026
Myndband
Sport

Íslandsmótið í sjósundi 2026

Norska knattspyrnusambandið gefur allan ágóða HM26 til Gasa
Sport

Norska knattspyrnusambandið gefur allan ágóða HM26 til Gasa

FIFA lengir hálfleik úrslitaleiksins á HM
Sport

FIFA lengir hálfleik úrslitaleiksins á HM

Loka auglýsingu