1
Innlent

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

2
Fólk

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

3
Heimur

Sjötíu og sjö prósent líkur á eldgosi á Kanaríeyjum

4
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

5
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

6
Fólk

Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu

7
Innlent

Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VR

8
Fólk

Benedikt dvaldi fjóra daga á sjúkrahúsi eftir óvenjulegt slys

9
Sport

Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki

10
Heimur

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni

Til baka

Stökk inn í bílinn á nokkrum sekúndum og fékk háa sekt

„Sterkt dæmi um skort á aðstæðuvitund, dómgreind, og umburðarlyndi“

Stöðumælasekt
Frúin að sækja Dadda í miðbænum„Í síðustu viku náðist slíkt atvik á mynd þegar að frúin stöðvaði í einhverjar sekúndur til að pikka mig upp“
Mynd: Facebook/Daddi Gudbergsson

Kjartan Guðbergsson, yfirleitt kallaður Daddi Disco, segir frá leiðindum sem hafa náð langt fram úr meðalhófi í opinberri færslu.

Daddi og kona hans Sara Pálsdóttir framkvæmdastjóri Samskipta hafa verið að deila bíl vegna þess að þau starfa bæði í miðbænum. Þau vinna hvort á sínum vinnustaðnum svo Daddi segist ávallt stökkva inn og út nærri sínum vinnustað. Bíllinn var að sögn Dadda stopp í einhverjar sekúndur uppi á gangstétt þegar stöðumælavörður sektaði þau og sendi sektartilkynningu upp á tíu þúsund krónur.

„Við hjónin höfum í sumar deilt bíl á leið í og úr vinnu þar sem við störfum bæði í miðbænum. Þar sem við erum á sitthvorum vinnustaðnum þarf ég að stökkva út og inn nærri minni starfstöð. Sökum aldurs er mér ókleift að gera það á ferð, þannig að líkt og flestir leyfum við okkur að stoppa örstutt þar sem ekki er hætta og mér hleypt út, eða eftir atvikum - inn.

Í síðustu viku náðist slíkt atvik á mynd þegar að frúin stöðvaði í einhverjar sekúndur til að pikka mig upp. Þar var að verki árvökull stöðumælavörður sem er í fullum rétti þar sem ekki má stöðva eða leggja uppi á gangstétt. 6 mínutum síðar var komin sektartilkynning á ísland.is og greiðsluseðill upp á 10 þúsara í heimalandsbankann.“

Daddi bendir á að ekki hafi verið mikil hætta á ferð þá stundina og er ekki skemmt. Þó segir hann í kaldhæðni að hann hafi nú verið nálægt Seðlabankanum svo kannski hafi þau bara verið nærri því að fella krónuna.

„Ég andmælti, vitandi að niðurstaðan yrði alltaf vísun í umferðalög og bann við stöðvun og/eða lagningu uppi á gangstétt. Andmælti ekki af því að ég taldi mig/okkur ekki hafa brotið lög, heldur af því að þarna er sterkt dæmi um skort á aðstæðuvitund, dómgreind, og umburðarlyndi. Þetta eru leiðindi langt fram úr meðalhófi, og líklega afleiðing persónulegra áfalla sem brýst fram í hvata til að bara fokking sekta þetta lið sem fer ekki eftir reglum.

Reglum sem eru settar til að forða slysi eða tjóni á fólki og verðmætum.

Eins og sést á myndinni sem var tekin, stefndi þetta skeytingaleysi okkar fólki, fé og atvinnustarfsemi í bráða hættu. Öll þessi ökutæki í kringum okkur hefðu getað lent í ógöngum, já og allt þetta gangandi fólk sem sést á myndinni er heppið að sleppa lifandi. Ég meina Seðlabankinn er þarna nærri og við vorum nærri því að fella krónuna. Ingólfur næstum dottinn af stallinum og gera þurfti hlé á réttarhöldum í Hæstarétti.

Mér er lífsins ómögulegt að skilja hvernig er ætlast til að við hefðum átt að leysa þetta. Finna stæði fyrir örugga uppítöku? Já gangi okkur vel með það í miðbænum.

Nei í alvöru, fyrir tíu fokking þúsund kall hef ég, reyndar ekki samkvæmt lögum öðrum en óskalögum, fullan rétt til að tuða yfir þessu. Njótið myndarinnar. Ekki oft sem þessir leggir sjást berir í bænum.“

Mynd var tekin af brotinu sem Daddi fékk senda frá Reykjavíkurborg eftir að hann andmælt.

„Vil hæla yndislegu konunni í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar sem gat sent mér myndina eftir að hún hvarf úr sektartilkynningunni (í kjölfar andmæla minna). Höfundum og eigendum flutningsréttar á Borgarbrag Gunnars Þórðarsonar bendi ég að banna notkun tónlistarinnar sem biðtóna í Þjónustuverum. Býr til neikvæða hugræna tengingu þeirra sem hringja inn við þá frábæru tónlist sem platan geymir.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“
Innlent

Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“

Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Járnþrúður skipuð formaður
Innlent

Járnþrúður skipuð formaður

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur
Heimur

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

Sverrir Einar aftur dæmdur fyrir skattalagabrot
Innlent

Sverrir Einar aftur dæmdur fyrir skattalagabrot

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu
Heimur

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

Móðir ákærð fyrir að slá, klípa og bíta dætur sínar
Innlent

Móðir ákærð fyrir að slá, klípa og bíta dætur sínar

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu
Heimur

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar
Heimur

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni
Heimur

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni

Innlent

Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“
Innlent

Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“

Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VR
Innlent

Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VR

Járnþrúður skipuð formaður
Innlent

Járnþrúður skipuð formaður

Sverrir Einar aftur dæmdur fyrir skattalagabrot
Innlent

Sverrir Einar aftur dæmdur fyrir skattalagabrot

Móðir ákærð fyrir að slá, klípa og bíta dætur sínar
Innlent

Móðir ákærð fyrir að slá, klípa og bíta dætur sínar

Fletti níu sinnum í sjúkraskrá konu án tilefnis
Innlent

Fletti níu sinnum í sjúkraskrá konu án tilefnis

Loka auglýsingu