1
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

2
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

3
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

4
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

5
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

6
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

7
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

8
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

9
Innlent

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is

10
Heimur

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni

Til baka

Stór hluti Evrópu gæti staðið í ljósum logum í ágúst

Gæti orðið versta gróðureldasumar í sögu Evrópu

Gróðureldar á Spáni
Evrópa brennurMaður horfir á gróðurelda á Spáni
Mynd: JOSE JORDAN / AFP

Um 350 þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna gróðurelda sem geisa víða um Evrópu. Verst er ástandið á Spáni og í Frakklandi en ferðamönnum hefur verið ráðlagt að forðast þau svæði sem hafa orðið verst úti. Á Madridarsvæðinu einu hafa tæplega 90 þúsund manns verið fluttir á brott.

Eldarnir eru sagðir algerlega stjórnlausir og samkvæmt tölum Evrópusambandsins hafa þegar um 254 þúsund hektarar lands brunnið á þessu ári. Það er aðeins skammt frá metárinu 2025 þegar 270.449 hektarar eyðilögðust í eldum. Umfang eldanna árið 2026 er jafnframt mun meira en meðaltal fyrri ára.

Sérfræðingar vara nú við því að fjórða hitabylgjan í sumar sé á leiðinni og að hætta á gróðureldum muni aukast enn frekar í Grikklandi, á Ítalíu og víðar í Mið-Evrópu á næstu dögum.

Maria Zuber, sem starfar við samhæfingarmiðstöð Evrópusambandsins fyrir neyðarviðbrögð (ERCC), segir að ef ekki takist að ráða niðurlögum eldanna í Portúgal og á Spáni gæti stór hluti Evrópu staðið í ljósum logum í byrjun ágúst.

Hún sagði á blaðamannafundi í Brussel að árið 2026 gæti orðið versta eldasumar í sögu Evrópu.

Mannleg mistök talin eiga stóran þátt

Gróðureldar geisa nú víða um álfuna. Á Sikiley á Ítalíu hafa um 6.000 slökkviliðsmenn barist við eldana undanfarna daga með vatnsflugvélum og öðrum búnaði. Á meginlandi Ítalíu hafa að minnsta kosti 160 eldar kviknað og ítölsk yfirvöld telja að mannleg mistök eða íkveikjur séu helsta skýringin.

Portúgal hefur einnig orðið illa úti síðustu vikur. Í Oleiros-héraði breiddust eldar hratt út og stjórnvöld brugðust við með landsvísuviðvörun. Meðal annars var bannað að kveikja elda og aðgangur að skógum takmarkaður.

Eldar á vinsælum ferðamannastöðum

Í Grikklandi hafa gróðureldar brotist út á vinsælum ferðamannastöðum, meðal annars á Krít og í Þessalóníku, næststærstu borg landsins. Yfirvöld óttast að fleiri eldar geti kviknað á næstu dögum.

Í Skotlandi hefur eldur logað í Cairngorms-þjóðgarðinum í tólf daga. Yfirvöld segja hættuna hvergi nærri liðna og að um sé að ræða versta eld sem komið hefur upp á svæðinu. Talið er að það muni taka áratugi að endurheimta náttúruna.

Í Frakklandi hafa meira en 160 manns verið handteknir grunaðir um að hafa kveikt gróðurelda. Yfirvöld þar hafa lýst ástandinu sem því alvarlegasta frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.

Nýjasta ríkið sem hefur orðið fyrir barðinu á eldunum er Tyrkland. Þar hefur stór eldur í suðvesturhluta landsins leitt til þess að yfirvöld lokuðu þjóðvegi í grennd við vinsælan ferðamannastað.

Búist er við að fjórða hitabylgja sumarsins gangi yfir Evrópu í næstu viku og sums staðar í Frakklandi hefur hitinn þegar farið yfir 40 stig.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna
Fólk

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna

Andri Már kveður leikskólann Baug eftir tæplega átta ár í starfi
Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn
Innlent

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn

Dorrit skorar á forseta Ísraels að hleypa arabískum flokkum í ríkisstjórn
Pólitík

Dorrit skorar á forseta Ísraels að hleypa arabískum flokkum í ríkisstjórn

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

Átta ára drengur skotinn til bana
Heimur

Átta ára drengur skotinn til bana

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta
Heimur

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar
Innlent

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu
Innlent

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt
Pólitík

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“
Pólitík

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun
Innlent

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun

Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Lögreglan óttast að ofbeldisfullar óeirðir brjótist út á Tenerife á morgun
Ian McKellen minnist Patrick Stewart
Heimur

Ian McKellen minnist Patrick Stewart

Átta ára drengur skotinn til bana
Heimur

Átta ára drengur skotinn til bana

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta
Heimur

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta

Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein
Heimur

Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu
Myndband
Heimur

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu

Loka auglýsingu