
Tónlistarmaðurinn Haukur Páll Árnason er einn þeirra sem standa að tónleikaviðburði á Hjartatorgi á Menningarnótt.
Upphaflega stóð til að halda fremur litla tónleika en áformin tóku fljótt að stækka eftir að skipuleggjendur fengu styrk úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar.
Haukur Páll segir að upphaflega hafi hugmyndin verið að bjóða upp á tónleika með tónlistarfólki sem tengist stúdíói þeirra, þar á meðal KA-OSS, R.O.K og Trausta~. Aron, söngvari KA-OSS, hafi síðan rekist á auglýsingu um styrki úr Menningarnæturpottinum.
„Ég hafði þá strax samband við umboðskonuna mína Sonju til að kanna þetta nánar. Góðar hugmyndir verða að veruleika þegar hún tekur við keflinu,“ segir Haukur Páll.
Styrkur fékkst til verkefnisins og í kjölfarið var ákveðið að hugsa stærra. Matthias Moon og Árni, trommuleikari KA-OSS, bættust í hóp skipuleggjenda og hefur undirbúningur staðið yfir af fullum krafti.
Fannst gaman að fara þangað sem krakki
Markmiðið er að sögn Hauks Páls að skapa lifandi og aðgengilegan viðburð þar sem ólíkir tónlistarmenn koma saman. Auk tónlistarinnar verða ýmsir sölubásar á torginu, meðal annars frá Wabi Sabi, Palestínu Blóm og Rigensborg, auk þess sem rakarar frá Studio 110 verða á staðnum.
Haukur Páll segir Hjartatorg hafa orðið fyrir valinu vegna staðsetningar þess og sögu. Hann minnist sérstaklega gamla Hjartagarðsins, sem var á árum áður vinsæll samkomustaður hjólabrettafólks, listamanna og veggjalistafólks.
„Sjálfur elskaði ég Hjartagarðinn og fannst alltaf gaman að kíkja þangað sem krakki en ég sé einnig möguleikana sem torgið býður upp á í dag,“ segir hann.
Hann segir lífið á torginu hafa aukist mikið á síðustu árum og það sé sérstakt að fá að leggja sitt af mörkum til menningarlífs þar. Útitónleikar í miðborginni gefi fólki jafnframt færi á að rekast óvænt á tónlist, staldra við og taka þátt í stemningunni.
Fjölbreytni verður í fyrirrúmi í tónlistardagskránni og segir Haukur Páll að skipuleggjendur vilji gefa ólíkum flytjendum tækifæri til að koma fram fyrir stóran hóp gesta. Vonin sé einnig sú að gestir uppgötvi tónlistarfólk sem þeir hafi ekki áður heyrt í.
„Svo var draumur að fá Saint Pete og Inspector Spacetime til að koma fram. Stundum borgar sig að dreyma stórt,“ segir Haukur Páll.
Ýmislegt framundan hjá Hauki
Sjálfur hefur hann í nógu að snúast um þessar mundir. Auk þess að koma fram undir eigin nafni er hann meðlimur í nýju hljómsveitinni R.O.K og starfar jafnframt áfram sem pródúser og lagahöfundur með öðrum listamönnum.
Næstu daga er þó Menningarnótt efst á baugi.
„Menning er virkilega mikilvægur hluti af samfélaginu. Þetta dregur okkur saman, myndar sterkari heild og eykur kærleika milli ólíkra hópa,“ segir Haukur Páll.
