
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af fjölda mála í gærkvöldi og í nótt, þar á meðal fíkniefnabrotum, innbroti, óspektum á veitingastöðum og hávaðakvörtun vegna knattspyrnuleiks.
Í Reykjavík var maður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, akstur án ökuréttinda, sölu og dreifingu fíkniefna auk peningaþvættis. Hann var vistaður í fangaklefa á lögreglustöð á meðan rannsókn málsins stendur yfir.
Lögregla var einnig kölluð á veitingastað í miðborginni, þar sem gestur gat ekki greitt fyrir veitingar sem hann hafði neytt. Þá barst tilkynning um ætlaða vasaþjófa í sama hverfi, en þrátt fyrir umfangsmikla leit tókst lögreglu ekki að hafa uppi á þeim.
Síðar um kvöldið var óskað eftir aðstoð lögreglu á bar í miðborginni vegna manns sem var til vandræða. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem málið var afgreitt. Að því loknu var honum sleppt.
Jafnframt var brotist inn í verslun í miðborginni þar sem peningakassa var stolið. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu.
Í Hafnarfirði var lögregla kölluð að íbúðarhúsi vegna hávaða. Samkvæmt dagbók lögreglu hafði húsráðandi orðið afar æstur við að fylgjast með leik Englands og Mexíkó á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu.
Þá var maður í mjög annarlegu ástandi vegna gruns um fíkniefnaneyslu handtekinn í Árbænum. Hann er sagður hafa tálmað störfum lögreglu, eins og það er orðað í tilkynningu lögregli, og haft í hótunum við lögreglumenn. Maðurinn var vistaður í fangaklefa þar til hægt verður að ræða við hann.
