1
Fólk

Guðmundur í Baggalút kominn með nýja vinnu

2
Innlent

Balti blandar sér í ESB-umræðuna

3
Fólk

Flottasti kastali Íslands til sölu

4
Peningar

Fimmtán í Vestmanneyjum með meira en nóg milli handanna

5
Heimur

Kanar teknir í Keflavík

6
Innlent

Illugi Jökulsson óttast um stöðu Íslands

7
Innlent

„Líklega hefur aldrei farið í gang stærri áróðursherferð á Íslandi“

8
Heimur

Brjóstakrabbamein flugfreyju viðurkennt sem sjúkdómur vegna atvinnu

9
Innlent

Stefán Pálsson stígur fram

10
Innlent

Konu skellt í steininn fyrir að borga ekki skuld

Til baka

„Það er erfitt að vera ungur karlmaður í vestrænum heimi í dag“

Skákstórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson segist gríðarlega þakklátur fyrir lífið

VignirVatnar
Vignir Vatnar Stefánsson
Mynd: Skák.is

Skákstórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson segist gríðarlega þakklátur fyrir lífið eftir að hafa glímt við alvarlega vanlíðan og farið svo djúpt að hann hugleiddi að taka eigið líf. Hann vill nú nýta reynslu sína til að opna umræðuna um andlega líðan ungra karlmanna og veita öðrum í sambærilegri stöðu von.

Vignir er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í hlaðvarpi hans. Hann hefur á undanförnum árum skipað sér í hóp öflugustu ungu skákmanna Íslands og vakið athygli fyrir árangur sinn við skákborðið.

Í viðtalinu ræðir Vignir meðal annars opinskátt um erfið tímabil í lífi sínu. Hann telur mikilvægt að samfélagið taki stöðu ungra karlmanna alvarlega og segir marga þeirra glíma við einangrun, fíkn og slæma andlega líðan.

„Það er erfitt að vera ungur karlmaður í vestrænum heimi í dag og þess vegna finnst mér að mér beri ákveðin skylda til þess að tala um þetta og gefa ungum karlmönnum sem eru að glíma við erfiðleika von og sýna að það sé hægt að komast út úr þessu,“ segir Vignir.

Hann nefnir meðal annars tölvuleikjafíkn og klám sem dæmi um þætti sem geti ýtt undir fíkn og einangrunarhegðun. Sjálfur vilji hann sýna með sögu sinni að hægt sé að snúa við blaðinu.

„En það er alltaf leið út og ég er besta dæmið um það. Ég held að mér beri skylda að hjálpa með því að segja mína sögu og vera alveg opinskár.“

Mikið hark að lifa á skákinni

Vignir ræðir einnig atvinnumennskuna í skák og segir það hafa verið mikið hark að reyna að framfleyta sér eingöngu með keppni. Verðlaunafé geti sveiflast verulega eftir árangri og stundum geti ein skák skipt sköpum fjárhagslega.

Hann tekur sem dæmi mót í London þar sem sigur hefði skilað honum um 1,8 milljónum króna. Vignir var með vænlega stöðu gegn spænskum stórmeistara í úrslitum en skákin endaði með jafntefli.

„Það þýddi að ég fékk þrjúhundruð þúsund kall í staðinn. Þannig að það eru ekki alltaf jólin í þessu,“ segir hann.

Að hans sögn er því mikilvægt fyrir atvinnuskákmenn að byggja upp eigin ímynd, nýta samfélagsmiðla og afla samstarfsaðila í stað þess að reiða sig eingöngu á verðlaunafé.

Staða Vignis hefur batnað samhliða auknum árangri og athygli. Hann segir fjárhagslega óvissuna ekki lengur jafn mikla og áður.

„Ég er ekki lengur í þeirri stöðu að ef ég vinn ekki mót, þá geti ég ekki borgað leiguna mína. Þannig að ég er mjög þakklátur og ætla að halda áfram að elta drauminn alla leið.“

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg

Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fjölmenni á útifundi Áfram Ísland
Innlent

Fjölmenni á útifundi Áfram Ísland

Maggi, Snorri, Ólafur Ragnar og Samúel mættu
Balti blandar sér í ESB-umræðuna
Innlent

Balti blandar sér í ESB-umræðuna

Guðmundur í Baggalút kominn með nýja vinnu
Fólk

Guðmundur í Baggalút kominn með nýja vinnu

SAS gert að greiða bætur vegna flugs til Íslands
Innlent

SAS gert að greiða bætur vegna flugs til Íslands

Inga búin að skrifa undir símabannið
Pólitík

Inga búin að skrifa undir símabannið

Stefán Pálsson stígur fram
Innlent

Stefán Pálsson stígur fram

„Líklega hefur aldrei farið í gang stærri áróðursherferð á Íslandi“
Innlent

„Líklega hefur aldrei farið í gang stærri áróðursherferð á Íslandi“

Illugi Jökulsson óttast um stöðu Íslands
Innlent

Illugi Jökulsson óttast um stöðu Íslands

Rússi ók á ellefu manns í Frakklandi
Heimur

Rússi ók á ellefu manns í Frakklandi

Sakar ESB-sinna um „árás á Ísland“
Innlent

Sakar ESB-sinna um „árás á Ísland“

Spenna í loftinu í Mosfellsbæ
Fólk

Spenna í loftinu í Mosfellsbæ

Sex mánaða dómur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot
Innlent

Sex mánaða dómur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot

Fólk

Guðmundur í Baggalút kominn með nýja vinnu
Fólk

Guðmundur í Baggalút kominn með nýja vinnu

Spenna í loftinu í Mosfellsbæ
Fólk

Spenna í loftinu í Mosfellsbæ

Þurfti að veiða fiska með spjóti til að fæða fjölskylduna
Myndband
Fólk

Þurfti að veiða fiska með spjóti til að fæða fjölskylduna

„Ég hef alltaf hugsað lífið sem tískusýningu“
Viðtal
Fólk

„Ég hef alltaf hugsað lífið sem tískusýningu“

Flottasti kastali Íslands til sölu
Myndir
Fólk

Flottasti kastali Íslands til sölu

Loka auglýsingu