1
Innlent

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

2
Heimur

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði

3
Heimur

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

4
Fólk

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

5
Heimur

Sjötíu og sjö prósent líkur á eldgosi á Kanaríeyjum

6
Fólk

Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu

7
Sport

Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki

8
Heimur

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker

9
Innlent

Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VR

10
Fólk

Benedikt dvaldi fjóra daga á sjúkrahúsi eftir óvenjulegt slys

Til baka

Trylltust út af teikningu

Starfsmenn skoptímarits hafa verið handteknir. Erdogan forseti segir að Múhammeð hafi verið á teikningunni.

Íslömskir mótmælendur lentu í átökum við tyrkneska óeirðalögreglu þegar þeir komu saman til að mótmæla háðsádeilutímaritinu LeMan í Istanbúl þann 30. júní 2025. Átök brutust út í borginni á mánudag þegar lögregla beitti gúmmíkúlum og táragasi til að leysa upp æstan mannfjölda, samkvæmt fréttaritara AFP.

Atvikið átti sér stað eftir að yfirmaður saksóknara í Istanbúl gaf út handtökuskipun á hendur ritstjórum LeMan, á grundvelli þess að tímaritið hefði birt teikningu sem „opinberlega móðgaði trúarleg gildi“.
Reiðir mótmælendurÍslamskir mótmælendur lentu í átökum við tyrkneska óeirðalögreglu þegar þeir komu saman til að mótmæla háðsádeilutímaritinu LeMan í Istanbúl í gærkvöldi. Átök brutust út þegar lögregla beitti gúmmíkúlum og táragasi til að leysa upp æstan mannfjölda.
Mynd: AFP

Uppnám hefur verið í Tyrklandi, bandalagsríki Íslands, í gærkvöldi og í dag, vegna reiði íslamista og forseta landsins yfir teikningu af því sem þeir segja vera spámaðurinn Múhammeð í háðslegu samhengi.

Recep Tayyip Erdoğan Tyrklandsforseti fordæmdi í dag háðsádeilutímarit eftir ásakanir um að það hefði birt teikningu af spámanninum Múhameð, og kallaði það „viðbjóðslega ögrun“.

„Þetta er augljós ögrun dulbúin sem húmor, viðbjóðsleg ögrun,“ sagði hann reiðilega og fordæmdi það einnig sem „hatursglæp“.

„Þeir sem sýna spámanninum okkar og öðrum spámönnum vanvirðingu munu sæta ábyrgð fyrir lögum.“

Um 300 mótmælendur öskruðu skammaryrði gegn tímaritinu og hrópuðu: „Gleymið ekki Charlie Hebdo“, í tilvísun til árásarinnar í París árið 2015 þegar íslamskir byssumenn drápu 12 manns eftir að tímaritið hafði birt skopmyndir af spámanninum Múhameð.

„Niður með veraldarhyggju, upp með sharía! Jihad, jihad, píslarvætti!“ hrópuðu þeir í átökum við lögreglu sem beitti táragasi og gúmmíkúlum.

Tyrkland skopteikning 2
Reiðir yfir teikninguTyrkneskir karlmenn hrópa andmæli sín í garð starfsfólks skoptímarits. Atvikið átti sér stað eftir að yfirsaksóknari Istanbúl gaf út handtökuskipun á hendur ritstjórum LeMan-tímaritsins, með þeim rökum að það hefði birt teikningu sem „opinberlega móðgaði trúarleg gildi“.
Mynd: AFP

LeMan, vikulegt háðstímarit, hefur alfarið hafnað ásökununum. Ritstjóri þess sagði við AFP að myndin hefði „ekkert með spámanninn Múhameð að gera“.

„Í þessu verki er nafni múslima, sem féll í loftárásum Ísraels, gefið hið skáldaða nafn Múhameð. Meira en 200 milljónir manna í íslamska heiminum bera nafnið Múhameð,“ sagði hann.

Teikningin sem vakið hefur deilur sýnir tvær persónur svífa yfir borg sem er undir loftárásum.

„Salam aleikum, ég heiti Múhameð,“ segir annar og réttir fram hönd. Hinn svarar: „Aleikum salam, ég heiti Musa.“

Erdoğan sagði yfirvöld hafa lagt hald á öll eintök útgáfunnar sem í hlut átti og gripið til lögregluaðgerða gegn tímaritinu – aðeins nokkrum klukkustundum eftir að fjórir háttsettir starfsmenn þess voru handteknir og handtökuskipun gefin út á hendur nokkrum til viðbótar.

Í nótt birti innanríkisráðherrann Ali Yerlikaya myndir af handtöku teiknarans, grafísks hönnuðar tímaritsins, útgefanda og annars starfsmanns þar sem þeir voru teknir af hörku – sem leiddi til gagnrýni frá tyrknesku mannréttindasamtökunum MLSA.

„Að handtaka teiknara og beita þá harðræði vegna meintrar ‘móðgunar á trúarlegum gildum’ vegna teikningar er ólögmætt,“ skrifaði einn stjórnenda samtakanna, Veysel Ok, á X.

„Jafnvel þótt mynd eða yfirlýsing sem er án ofbeldis særi eða ögri stórum hluta samfélagsins, er hún samt varin af tjáningarfrelsinu.“

LeMan var stofnað árið 1991 og er þekkt fyrir pólitískar háðsádeilur sínar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Járnþrúður skipuð formaður
Innlent

Járnþrúður skipuð formaður

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur
Heimur

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

Sverrir Einar aftur dæmdur fyrir skattalagabrot
Innlent

Sverrir Einar aftur dæmdur fyrir skattalagabrot

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu
Heimur

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

Móðir ákærð fyrir að slá, klípa og bíta dætur sínar
Innlent

Móðir ákærð fyrir að slá, klípa og bíta dætur sínar

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu
Heimur

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar
Heimur

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni
Heimur

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni

Landsliðsmaður Íslands á von á barni
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

Dóttir Diane Keaton minnist móður sinnar ári eftir andlátið
Heimur

Dóttir Diane Keaton minnist móður sinnar ári eftir andlátið

Fletti níu sinnum í sjúkraskrá konu án tilefnis
Innlent

Fletti níu sinnum í sjúkraskrá konu án tilefnis

Heimur

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur
Heimur

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur

„Hann virtist vera í leiðslu“
Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni
Heimur

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu
Heimur

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu
Heimur

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar
Heimur

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar

Loka auglýsingu