1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

4
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

5
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

6
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

7
Innlent

Reyndi að lauma sér til Íslands með fölsuðu skilríki

8
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

9
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

10
Innlent

Fjórir bílar í alvarlegu umferðarslysi

Til baka

Tugir flóttamanna sigldu upp að spænskri baðströnd

15 börn í hópnum

Flóttamenn undan strönd Spánar
62 handteknir eftir að hraðbátur sigldi upp á ferðamannaströnd á Spáni
Mynd: Skjáskot

Baðstrandagestir á Cala del Barco-ströndinni í Cartagena urðu vitni að því þegar hraðbátur sigldi beint upp að ströndinni um miðjan dag á miðvikudag. Spænska almannavarnarliðið (Civil Guard) handtók alls 62 einstaklinga eftir umfangsmikla leit á svæðinu.

Myndbönd af atvikinu hafa farið eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum. Á þeim sést hvar fjöldi fólks stendur upp úr bátnum og hleypur í land á meðan undrandi og skelfdir ferðamenn fylgjast með. Skömmu eftir að fólkið stökk frá borði sneru smyglararnir bátnum við á miklum hraða og flúðu aftur á haf út.

15 ólögráða drengir í hópnum

Samkvæmt opinberum tölum spænskra yfirvalda samanstóð hópurinn af 45 fullorðnum karlmönnum, tveimur konum og 15 ólögráða drengjum. Flestir þeirra eru taldir vera frá Alsír.

Fulltrúar Rauða krossins mættu á svæðið til að veita hópnum fyrstu aðstoð og mat, en allir reyndust við ágæta heilsu. Fólkið var í kjölfarið flutt í hendur ríkislögreglunnar (National Police) sem fer með útlendingamál á svæðinu og mun fylgja málinu eftir í samræmi við spænsk lög.

Kallað eftir tafarlausum aðgerðum stjórnvalda

Atvikið hefur hrundið af stað harðri pólitískri umræðu á Spáni um landamæraeftirlit. Báturinn sem notaður var er af gerðinni sem smyglarar kalla gjarnan „VIP-leigubíla“ vegna þess hve fljótir þeir eru að sigla yfir Miðjarðarhafið frá Norður-Afríku.

Noelia Arroyo, bæjarstjóri Cartagena, brást hart við atburðinum og krafðist þess að spænska ríkisstjórnin gripi strax til aðgerða. Hún sagði ólíðandi að smyglarar gætu siglt óáreittir upp að spænskri strönd um hábjartan dag og kallaði eftir auknu fjármagni, betri tækjabúnaði og fleiri lögreglumönnum til að gæta landamæranna í Murcia-héraði.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu