Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Vigdís stolt af þátttöku í haustsöfnun Barnaheilla

Spila­stokkurinn var unninn í samstarfi við Rán Flygenring

Vigdís Finnbogadóttir með Tótlu
Vigdís Finn­boga­dóttir með Tótlu Mynd: Barnaheill/Sunna Ben

Vigdís Finnboga­dóttir, fyrr­verandi forseti Íslands, tekur þátt í haust­söfnun Barna­heilla – Save the Children á Íslandi með sérstökum spila­stokki sem ber nafn hennar.

Vigdís tók á móti svokölluðum Vigdísar­stokki úr hendi Tótlu I. Sæmunds­dóttur, framkvæmda­stjóra Barna­heilla. Spila­stokkurinn var unninn í samstarfi við Rán Flygenring og prýða hann myndir úr verki hennar Vigdís: Bókin um fyrsta konu­forsetann.

„Ég er stolt að taka þátt í þessu verkefni með Barna­heillum, öllum börnum til heilla,“ sagði Vigdís þegar hún tók við stokknum.

Allur ágóði af sölu Vigdísar­stokksins rennur til alþjóðlegra verkefna Barna­heilla í Síerra Leóne, Madagaskar, Tansaníu og Írak. Þar vinna samtökin að verkefnum sem ætlað er að styðja börn sem búa við meðal annars stríð, ofbeldi, fátækt og takmarkað aðgengi að menntun.

Vigdís á sér langa sögu með Barna­heillum hér á landi. Hún tók þátt í stofnun samtak­anna árið 1989, nafn þeirra er úr hennar smiðju og hefur hún verið verndari þeirra frá upphafi.

Með útgáfu spila­stokksins vilja Barna­heill jafnframt heiðra framlag Vigdísar og þau gildi sem hún hefur lagt áherslu á í gegnum tíðina, meðal annars jafnrétti, sjálfbærni, menntun og virðingu fyrir öllum börnum.

Vigdísar­stokkurinn verður seldur á vef Barna­heilla auk þess sem hann fæst í fjölmörgum verslunum á höfuð­borgar­svæðinu. Þá mun sölufólk víða um land ganga í hús og bjóða stokkinn til sölu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“