Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ættingi Tómasar segir hann hafa verið í eitruðu sambandi: „Hún hafði stungið hann áður“

Ættingi Tómasar Waagfjörð heitins sem myrtur var á Ólafs­firði í fyrradag segir hann hafa verið harðduglegan fjölskyldu­föður áður en hann leiddist út í eiturlyf.

Líkt og Mannlíf greindi frá var Tómas myrtur aðfarar­nótt mánudags í Ólafs­firði. Hann var stunginn með eggvopni og fjórir hafa verið hand­teknir. Allir eru með réttar­stöðu sakborninga. Sambýlis­kona Tómsar er meðal þeirra fjögurra sem voru handtekin. Heimildir Mannlífs herma að sú sambúð hafi verið stormasöm og meðal annars orðið uppnám í lok seinustu viku í tengslum við yfir­vofandi málaferli.

Sjá einnig: Morðið sagt tengt heimilis­ofbeldi og sambýlis­kona í haldi: – Hinum látna var áður hótað lífláti

Dugnaðarforkur edrú

Mannlíf ræddi við ættingja Tómasar sem kvartaði undan neikvæðri umfjöllun um hinn látna í fjöl­miðlum. Vildi hann benda á að þótt frændi hans hafi leiðst út í fíkniefna­neyslu hafi hann verið allt annar maður þegar hann var edrú. „Málið er að hann var kominn út í fíkniefna­neyslu og fleira slíkt en fyrir fjórum árum skildi hann við barns­móður sína en þau voru saman í sjö ár og áttu tvö börn. Þá átti hann bara venjulegt líf og keypti tvær eignir og var að vinna 20 daga mánaðarins að keyra á milli Ólafs­víkur og Reykja­víkur með blöð og fleira. Hann var á góðum launum og allt blómstraði hjá honum.“

Ættingi Tómasar segir að eftir skilnaðinn hafi hann kynnst nýrri konu sem nú er sakborningur í morð­málinu. „Hún hafði stungið hann áður. Þetta var eitrað samband og beittu þau hvort annað heimilis­ofbeldi. Þetta var víta­hringur byggður á neyslu fíkniefna. Ég þurfti að loka á þau bæði, á börn sjálfur, þó maður sé allur af vilja gerður þá varð ég að loka á þau.“

Óöryggi

Ættinginn segir að Tómas hafi verið mjög óöruggur með sjálfan sig og hafi alltaf haldið að kærasta hans væri að halda framhjá sér með manninum sem nú hefur stöðu sakbornings í málinu. „Tommi var kominn í ákveðna geðveilu, hélt alltaf að hún væri að halda framhjá sér. Hún kom einhverntíman til mín fyrir mörgum mánuðum, vildi spjalla við mig, af því að ég er bara þannig manneskja að fólk getur komið til mín og spjallað við mig. Hún var búin að vera hjá mér í mínútu þegar Tommi hringir í mig, og hann er frændi minn, skilurðu? Og hann segir bara beint við mig að hann sé með lítið sjálfs­álit. Þannig að þú sérð að áfengi endar bara með geðveiki og dauða.“

Talið berst aftur að Tómasi þegar hann var edrú:

„Tommi sem ég þekkti edrú var búinn að byggja sér upp fjárhag og eignir og hann hjálpaði fjöl­skyldu að eignast húsnæði. Hann hjálpaði fólki, það er Tommi edrú. Ég vil bara koma því á framfæri að Tommi var góður maður og gerði margt gott. Tveggja barna faðir. Bara svona fyrir börnin, að þau fái líka jákvæða frétt um pabba sinn.“

Valdabarátta

Segir ættinginn að einhverskonar valda­barátta hafi verið á milli Tómasar og karl­mannsins sem nú hefur stöðu sakbornins í málinu. „Málið er að það var mikil spenna á milli þeirra tveggja, þetta var svona valda­barátta og maðurinn var búinn að ráðast mörgum sinnum á Tomma. Og svo var þetta heimilis­ofbeldi sem ég talaði um áðan, á báða bóga. Enda var lögreglan tíður gestur hjá þeim þannig að maður hélt sig bara frá húsinu. Og fólk var komið með nóg þegar fólk frá Keflavík var farið að mæta, fólk með tengingu inn í stóran heim, skilurðu? Þannig að bærinn var búinn að fá gjör­samlega nóg og fólk var bara ótta­slegið. Ég var búinn að segja að það væri bara tíma­spursmál, sérstak­lega eftir að kærasta hans var búin að stinga hann, að einhver myndi deyja. Heimili þeirra var bara orðinn dvalar­staður fyrir fíkla. Þetta var bara rosalega sorglegt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning