Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Nauðgaði 13 ára stúlku en fær ekki fangelsisdóm: „Ég held að fangelsi muni ekki hjálpa þér“

Sean Hogg, nauðgari
Sean Hogg, nauð­gari

Maður sem dæmdur var fyrir að nauðga 13 ára gamalli stúlku í almennings­garði, gengur nú frjáls ferða sinna vegna þess að dómarinn í máli hans segir hann of ungan fyrir fangelsis­vist. Maðurinn var 17 ára er glæpurinn var framinn en er nú 21 árs.

Sean Hogg var fundinn sekur um nauðgun á unglings­stúlkunni í Dalkeith Country garðinum í Midlothian í Skotlandi. Dómarinn í málinu, Lake lávarður sagði að aldur Hoggs, sem var 17 ára er hann framdi glæpinn, verði að taka inn í myndina er ákveða ætti refsingu.

Dæmdi því dómarinn Hogg til að vinna af hendi 270 klukku­tíma í óborgaðri vinnu.

Dómurinn hefur valdið mikilli reiði meðal stjórn­málamanna og góðgerða­samtaka í Skotlandi en Sandy Brindley, forstjóri Rape Crisis Scotland samtakana sagðist hafa áhyggjur af „mildi“ dómsins. Þá sagði hún einnig: „Þetta er mjög alvarlegt mál og við erum hneyksluð á að þessi gerandi hafi ekki hlotið fangelsisdóm. Miðað við alvarleika þessa glæps og þá staðreynd að hann var dæmdur fyrir Hæstarétti, þá höfum við áhyggjur af því hversu mildur dómurinn er. Hugur okkar er með fórnlarlambi glæpsins. Fyrir þolendur kynferðis­ofbeldis getur verið mjög erfitt að sjá fregnir af dæmdum gerendum sem ganga lausir frá dómstólum.“

Talsmaður skoska Íhalds­flokksins, Jamie Greene var einnig ósáttur. „Skortur á fangelsis­dómi er algjör móðgun við hinn unga brotaþola. Þetta sýnir enn og aftur hversu rangar refsireglur skoska Þjóðar­flokksins eru í raun og veru og hversu bundnar hendur dómarans eru vegna þess.“

Dóms­skjölin segja að Hogg, sem er frá Suður Lanarkshire, hafi ráðist á stúlkuna með því að hóta henni og toga niður neðri klæðnað hennar. Þá greip hann í úlnlið hennar og neyddi hana til að framkvæma kynferðislegt athæfi á honum og nauðgaði henni svo.

Almenn­ings­garð­ur­inn þar sem nauðg­unin átti sér stað.

Hogg grét þegar hann var fundinn sekur í Hæstarétti Glasgow. Dómarinn sagði: „Nauðgun er einn alvarlegasti glæpurinn og þess vegna er réttað í málinu fyrir Hæstarétti. Þegar horft er til aðstæðna, aldur stúlkunnar og varna­leysi hennar tekið til athugunar, geri það málið enn alvarlegra. Fyrir alvarleika­stigið, verð ég að horfa á ábyrgð þína og ég verð að taka aldur þinn inn í myndina. Ef þessi glæpur hefði verið framinn af full­orðnum einstaklingi, yfir 25 ára aldurinn, fengi hann fjögurra eða fimm ára fangelsisdóm. Ég tel það ekki viðeigandi og ætla ekki að dæma þig í fangelsi. Þetta er í fyrsta sinn sem þú brýtur á þér og hefur aldrei verið í fangelsi. Þú ert 21 árs og varst 17 ára þegar þetta gerðist. Ég held að fangelsi muni ekki hjálpa þér að ná endur­hæfingu.“

Fyrir utan þá 270 klukku­tíma sem Hogg þarf að vinna án launa, verður fylgst með honum og hann settur á kynferðis­brotamanna­lista næstu þrjú árin.

Donald Findlay verjandi, sagði við dóms­uppkvaðninguna að áfrýjun væri fyrir­huguð.

Fréttin er unnin upp úr frétt Mirror.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi