Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Pabbi Gretu Salóme fékk heilablóðfall í miðju flugi: „Vissum ekki hvort að hann hefði lifað af“

Greta Salóme
Greta Salóme Mynd: Vikan

Nýjasti gestur Hildar Maríu í Lifa og njóta hlaðvarps­þættinum er engin önnur en söngkonan og fiðlu­snillingurinn Greta Salóme Stef­ánsdóttir. Þjóðin kynntist þessari hæfileika­bombu er hún keppti fyrir hönd Íslands í Eurovision með lagið Mundu eftir mér árið 2012 og hefur haldið áfram að heilla landann æ síðan. Ræðir hún meðal annars um Disney-ævintýrið sem í byrjun leit ekkert sérstak­lega vel út. Þá segir hún einnig frá áfallinu þegar faðir hennar fékk heila­blóðfall í miðju flugi.

„Þetta er búið að vera mjög erfitt ár en á sama tíma ár sem setur lífið í svolítið samhengi,“ segir Greta Salóme við Hildi Maríu. Segir hún það mjög mikilvægt að geta stundum skilið símann eftir heima, slökkva á hausnum, hlusta á fallega tónlist og labba á Helgar­fellið sem er nánast í bakgarðinum hjá henni í Mosfells­bænum og kúpla sig aðeins út. „Það er bara mjög mikilvægt ef maður ætlar svo að vera upp á sitt besta upp á sviði.“

Áfall í flugi

„Ég var á leiðinni til Banda­ríkjanna að spila, núna í mars þegar ég fæ símtal frá mömmu. Hún segir mér að pabbi, sem var á leiðinni heim í skírn hjá fyrst barna­barninu sínu hjá litlu frænku minni, hafi fengið heila­blóðfall í flugi. Við erum mjög lítil og mjög samheldin fjöl­skylda og við höfum ekki þurft að díla við svona hluti áður. Við vissum ekki neitt. Við vissum ekki hvort að hann hefði lifað af, við bara vissum ekkert. Það eina sem við vissum var að hann var á leiðinni heim eftir vinnuferð á Grænlandi og hann hafði fengið þetta áfall í fluginu frá Grænlandi til Danmerkur. Og hann var kominn inn á spítalann í Köben. Og það eina sem okkur var sagt að það væri gott fyrir okkur að koma. Sem er auðvitað aldrei það sem maður vill heyra í svona aðstæðum. Þannig að við fljúgum út og við erum öll bara í áfalli. Og við fljúgum út haldandi að við munum mögulega þurfa að kveðja. Þetta móment, þegar þetta gerðist, þá skipti ekkert annað máli. Það fyrsta sem ég gerði var að hringja og cancela bara öllu. Bara „ég er off núna. Ég er ekki að fara að til Banda­ríkjanna eftir tvo daga, þú veist, ég er bara off“. Svo fór þetta reyndar miklu betur en á horfðist en við vissum ekki hvort pabbi myndi labba aftur eða hvort hann myndi þekkja okkur þegar hann vaknaði aftur eða hvort hann myndi tala einu sinni. En allt þetta hefur gengið aftur í dag, hann labbar og er alveg skýr. Þetta setti hlutina í samhengi. Pabbi er 68, hann er ekki gamall. Þetta var eitthvað sem ég þurfti svo ég myndi hægja á líka. Ég held að ekkert annað hefði getað stoppað mig í að keyra bara út af líka, úr vinnu og álagi. Þegar pabbi veikist tek ég bara þá ákvörðun að ég ætli að eyða þessum vetri alfarið heima með fjöl­skyldunni og hlúa að því sem skiptir máli. Því það er þannig að maður heldur að maður hafi enda­lausan tíma. Það er ekkert mikil­vægara en fjöl­skylda manns. Þegar þú ert komin niður af sviðinu og komin úr glamúr­dressinu og ert að að taka af þér make-upið, það bliknar allt, að vera uppi á sviði og upplifa þetta, ef þú hefur ekki einhvern til að fara heim til. Og þá er ég ekki að tala endilega um maka, er ekki að segja að fólk þurfi að eiga sína eigin fjöl­skyldu til að vera hamingju­samt en bara að hlúa að þér og þínu. Og í mínu tilfelli er það fjöl­skyldan mín og fólkið sem skiptir mig mestu máli, maðurinn minn og fjöl­skyldan mín.“

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir neðan eða á VefTV Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið