Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Forseti Úkraínu biðlar til ESB um aðild þegar í stað

Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu.
Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu.

Rétt í þessu deildi Volodymyr Zelenskyy, forseti Úkraínu myndbandi þar sem hann byður Evrópu­sambandið um að veita Úkraínu aðild að sambandinu þegar í stað, samkvæmt sérstakri máls­meðferð.

„Markmið okkar er að vera með öllum Evrópu­búum og síðast en ekki síst að vera jöfn. Ég er viss um að það er sann­gjarnt. Ég er viss um að við eigum það skilið,“ sagði hann í mynbandinu.

Í ræðu sinni sagði hann einnig að fangar með herreynslu yrðu látnir lausir ef þeir væru tilbúnir að taka þátt í barátt­unni gegn Rússlandi.

Þessi mynd sýnir úkra­ínska konu hlusta á ræðu for­set­ans í síma í athvarfi fyrir flótta­menn í Beregs­urany í Ung­verja­landi.

Úkraínsk stjórn­völd tilkynntu í morgun á 5. degi innrásar Rússa á Úkraínu­menn að 352 almennir borgarar hefðu fallið, þar af 14 börn. 1684 eru slasaðir og þar af 116 börn.

Samkvæmt Le Monde eru um 422.000 manns á flótta frá Úkraínu og eykst með hverjum degi.

Borgin Kharkiv er eins og stendur undir stjórn úkraínska hersins en fréttir herma að Rússar séu á leið inn í höfuð­borgina Kænugarð.

Fundur Úkraínu og Rússlands í Hvíta-Rússlandi

Mykhailo Podolyak, ráðgjafi Úkraínu­forseta, tilkynnti í þessu að viðræður við Rússa í Hvíta-Rússlandi væru hafnar.

Fundurinn mun leggja áherslu á að ná tafar­lausu vopnahléi og brott­hvarfi rússneskra hersveita, sagði í yfir­lýsingu úkraínska forsetans.

Í sendi­nefndinni sem er komin til Gomel-héraðs með þyrlu er með í för úkraínski varnarmála­ráðherrann Oleksii Reznikov.

Stjórnmála­skýrendur velta fyrir sér hvort Vladimír Pútín Rúss­lands­forseti sé reiðu­búinn að beita kjarna­vopnum. Fyrir­skipun hans um að sú sveit sem sér um kjarnorku­vopn hersins skuli sett í viðbragðs­stöðu hefur víða vakið ugg. Hann kallaði þær „fælingar­sveitir“ og sagði ástæðu tilskipunarinnar „árásar­gjarna framkomu“ Vestur­landa.

Alþjóða­samfélagið er uggandi yfir hótunum Pútíns, á meðan sumir telja hótanir Pútíns vera helst til gerðar til að „afvega­leiða“ frá innrásinni. Sendi­nefnd Úkraínu fer að landa­mærum Hvíta- Rússlands í dag til viðræðna við Rússland.

Mannlíf mun fylgjast með framvindu mála og flytja fregnir af fundinum dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá