Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Óánægja með biðlista og kerfið í heild sinni

Á tímabili biðu 900 börn eftir aðstoð og allt að þriggja ára bið.

Upplifun fólks á talmeina­þjónustu fyrir börn hefur verið mjög tvískipt. Fólk er almennt ánægt með gæði þjónustunnar þegar hún loksins fæst, en það hefur ríkt gríðarleg óánægja með biðlista og kerfið í heild sinni. Á tímabili biðu 900 börn eftir aðstoð og allt að þriggja ára bið.

Heilbrigðis­ráðuneytið og mennta- og barnamála­ráðuneytið birtu nýja sameiginlega aðgerða­áætlun um bætta talmeina­þjónustu við börn til ársins 2028. Markmiðið er að tryggja börnum hraðari, einfaldari og mark­vissari aðgang að talmeina­þjónustu sem miðast við þarfir hvers barns og er veitt sem mest í nærumhverfi þess.

Börn eiga ekki að þurfa að bíða

„Stytting biðlista barna er áherslumál ríkis­stjórnarinnar. Börn eiga ekki að þurfa að bíða eftir viðeigandi stuðningi. Með þessari áætlun er stigið mikilvægt skref í átt að aðgengilegri, samræmdari og skilvirkari talmeina­þjónustu sem byggir á hagsmunum barnsins og farsæld þess,“ segir Alma D. Möller, heilbrigðis­ráðherra í tilkynningu frá stjórn­völdum.

Meðal aðgerða er að fjölga talmeinafræðingum í heilsugæslu­þjónustu til að styðja við ung- og smábarna­vernd, efla þjónustu í nærumhverfi barna og tryggja að sérfræði­þjónusta sé aðgengileg þegar hennar er þörf.

Snemmtæk íhlutun

Áætlunin tekur einnig á mönnunar­vanda í faginu með því að leggja grunn að nýrri námsleið fyrir aðstoðar­fólk talmeinafræðinga sem getur stutt við snemmtæka íhlutun og þjónustu í leik- og grunn­skólum undir hand­leiðslu talmeinafræðinga.

Jafnframt er gert ráð fyrir innleiðingu á miðlægum biðlista eftir sérfræði­þjónustu talmeinafræðinga til að bæta yfirsýn yfir raun­verulega þjónustu­þörf og stytta biðtíma. Þá verður krafa um lækna­tilvísanir afnumin þannig að aðrir sérfræðingar sem koma að þjónustu barns geti sótt um sérfræði­þjónustu fyrir þess hönd.

Aðgerða­áætlunin nær til áranna 2026–2028 og verður framkvæmd í samstarfi ríkis, sveitar­félaga og helstu hagsmuna­aðila á sviði talmeina­þjónustu og farsældar barna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra