Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Gunnar Smári vill myndir af Ísidór og Sindra Snæ

Gunnar Smári Egilsson.
Gunnar Smári Egilsson.

Gunnar Smári Egilsson, forsprakki Sósíalista­flokksins, biður netverja um að senda sér í einka­skilaboðum myndir af hinum meintu íslensku hryðju­verkamönnum, sem ræddu sín á milli um að drepa sósíalista­foringjann, 3 pírata á þingi og Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, formann Eflingar. Um leið nafn­greinir alþýðu­miðillinn Samstöðin, sem Gunnar keyrir áfram, mennina tvo en þeir heita Sindri Snær Birgisson 25 ára og Ísidór Nathansson 24 ára.

Í gær féllst Lands­réttur ekki á kröfu saksóknara um tveggja vikna gæslu­varðhald til viðbótar yfir mönnunum en féllst á eina viku yfir hvorum þeirra.

Sjá einnig: Sólveig Anna: „Auðvitað óhugnanlegt að þessir menn voru að gæla við að taka mig af lífi“

Gunnar Smári og Sólveig Anna voru kölluð til vitna­leiðslu hjá lögreglu og hið sama á við um píratana þrjá, þá Björn Leví Gunnarsson, Helga Hrafn Gunnarsson og Smára McCarthy. „Miðað við tíma­setninguna var ég þarna á veitinga­stað að borða með 15 ára dóttur minni,“ segir Gunnar Smári eftir að honum var tilkynnt að hinir meintu íslensku hryðju­verkamenn gældu við að drepa sig. Hann útskýrir í færslu á Facebook hvers vegna honum þótti mikilvægt að hinir meintu hryðju­verkamenn væru nafn­greindir:

„Við rann­sóknina hefur komið í ljós að þeir gældu við að drepa nokkurn hóp af fólki, sem virðist hafa það sameiginlegt að fara í taugarnar á hægri­mönnum. Ég studdi nafn­birtinguna sem blaða­maður og ég styð hana líka sem einn þeirra sem þessir menn ræddu um að drepa. Ég vona að birting nafnanna leiði til þess að myndir af mönnunum verði birtar. Eins og það fólk sem þeir voru að gæla við að myrða þá þarf ég eiginlega að vita hvernig þeir líta út, úr því að þeim verður sleppt úr gæslu­varðhaldi á föstu­daginn. Þið getið sent mér myndir í einka­skilaboðum,“ segir Gunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning