Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Morðið í Garðyrkjuskólanum á Reykjum – Banvæn afbýðisemi

Þriðjudaginn 6. janúar 1957, myrti Sigur­björn Ingi Þorvaldsson unnustu sína, Concordíu Jónatans­dóttur með rifli í eldhúsi Garðyrkju­skólans á Reykjum í Hvera­gerði. Í fyrstu hlaut Sigur­björn 12 ára dóm fyrir morðið en Hæstiréttur þyngdi dóminn í 16 ár.

Það var rétt fyrir hádegi, sunnu­daginn 6. janúar árið 1957 að Sigur­björn Ingi, vinnu­maður í Garðyrkju­skólanum fór til Hvera­gerðist til að hitta mann sem hann hafði vitneskju um að ætti riffil. Fékk hann riffilinn lánaðan með því að ljúga því til að hann þyrfti að aflífa fótbrotinn kálf. Maðurinn lánaði Sigur­birni riffilinn með þremur skotum í. Sigur­björn þurfti aðeins eitt þeirra.

Sigur­björn fór þá aftur í Garðyrkju­skólann á Reykjum og borðaði hádegis­verð með nemendum og starfs­fólki skólans. Fólki brá við að sjá hann með riffilinn en hann róaði það með því að segja ekki eiga skot í hann. Sigur­björn og unnusta hans, Conkordía höfðu verið á dansleik kvöldið áður, í bænum en enginn hafði tekið eftir óeðlilegri hegðun hans. Conkordía var nemandi í skólanum en þau höfðu þekkst í rúmt ár.

Sigur­björn kláraði matinn og tók svo eina skák við annan mann í sal skólans en hann þótti nokkuð lunkinn skákmaður og var vel liðinn meðal fólks á svæðinu. Eftir skákina reis hann á fætur, tók riffilinn í hönd og gekk inn í eldhús skólans. Voru þar fyrir nokkrar konur en Concordía var ein þeirra. Sigur­björn spurði ráðs­konuna sem þar var, hvort nokkuð vantaði mjólk úr fjósinu. Þá gekk hann upp að unnustu sinni og beindi orðum sínum að henni:„Jæja, Día mín.“ Svo beindi hann rifflinum að kvið hennar og tók í gikkinn. Gekk hann svo í herbergi sitt í rólegheitunum og lokaði að sér. Lést Concordía fljótlega eftir að skotið reið af. Klukku­tíma síðar var Sigur­björn hand­tekinn af sýslu­manni Árnesinga, Páli Hallgríms­syni.

Concordía, sem var einungis 19 ára er hún lést, hóf nám við skólann ári áður en Sigur­björn var vinnu­maður við skólann. Játaði hann morðið strax en gaf aldrei upp ástæðuna. Talið var að megn afbrýðisemi hans hafi átt þar þátt í máli. Þá hafði hann verið undir áhrifum samfleytt í nokkra daga fyrir morðið og sofið lítið, var það talið eiga sinn þátt í ákvörðun hans um að myrða unnustu sína. Eftir að hafa sætt geðrannsókn á Kleppi í sjö mánuði, var hann talinn sakhæfur.

Sigur­björn hafði reyndar þjáðst af þunglyndi síðasta hálfa árið og reynt að fremja sjálfsvíg með því að innbyrða Lýsol, sem er sterkt efni sem notað er í sápur. Tókst þá að koma honum til læknis í tæka tíð. Síðustu mánuðina fyrir morðið hafði fólk þó tekið eftir því að hann virtist rólegur og í essinu sínu.

Í Morgun­blaðinu frá árinu 1957 er vitnað í skýrslu dr. Helga Tómassonar: „Almenn taugakerfis­rannsókn er eðlileg, einkanlega skal tekið fram, að ekki eru neinir Keith Flachs hringir í augunum né önnur einkenni, sem bent gætu til svonefndra Hepato. Álit mitt á Sigur­birni Inga Þorvalds­syni er þetta: Hann er hvorki fáviti né geðveill í venju­legum skilningi, en haldinn tíma­bundinni drykkju­sýki, dipsomani. Hann hefir vefrænan tauga­sjúkdóm. Við langa athugun á geðspítala, komu engin geðveikis­heilkenni fram hjá honum, en fimm sinnum má telja, að um nokkrar geðlags­sveiflur hafi verið að ræða svipaðar þeim, sem koma fram hjá periodiskt drykkju­sjúkum mönnum, sveiflur sem ef hann hefði verið utan spítala, sennilega hefðu valdið því að hann hefði farið að neyta áfengis. Maðurinn virðist fyllilega vita hvað honum hefir orðið á og skilja viðbrögð þjóð­félagsins.“

Sigur­björn hlaut 12 ára dóm fyrir morðið en eftir að málið var áfrýjað þyngdi Hæstiréttur dóminn og bætti við 4 árum til viðbótar. Var það lengsti dómur sem nokkur hafði hlotið á Íslandi um árabil. Sigur­björn lést árið 1995.

Baksýnis­spegill þessi birtist fyrst 21. október 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið