Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sunna fékk óvænt starfslokasamning – Mannauðsstjóri Fjarðabyggðar skrifaði pistla um vanhæfa stjóra

Bæjarskrifstofa Fjarðabyggðar Mynd / Fjardabyggd.is
Bæj­ar­skrif­stofa Fjarða­byggðar Mynd / Fjar­da­byggd.is

Mannauðs­stjóri Fjarða­byggðar, Sunna Arnar­dóttir, fékk starfsloka­samning í hendurnar fyrir helgi. Er hún þá komin í hóp fjöldi starfs­manna skrif­stofu sveitar­félagsins sem hætt hafa störfum á stuttum tíma.

Sunna Arn­ar­dóttir

Líkt og Mannlíf sagði frá í gær er mikil ólga hjá starfs­mönnum skrif­stofu Fjarða­byggðar sem og hjá Fjarða­byggðar­höfnum, vegna tíðra uppsagna og lélegra starfs­hátta en 15 hættu þar á síðasta ári.

Sjá einnig: Fjarða­byggð neitar að svara spurningum Mannlífs um starfs­mannamál: „Ástandið er mjög alvarlegt“

Sunna Arnar­dóttir, sérfræðingur í mannauðs­málum, var ráðin sem mannauðs­stjóri Fjarða­byggðar síðastliðið sumar en skrifaði undir starfsloka­samning fyrir síðustu helgi. Í febrúar hafði hún skrifað pistla sem birtust á Vísi þar sem hún fjallaði um vanhæfa stjórnar­hætti og meðvirkni á vinnu­stöðum. Þá var hún til viðtals í Dagmálum hjá Mbl í dag þar sem hún fór vel yfir slæma stjórnar­hætti. Þykir mörgum þetta kaldhæðið í ljósi umræðunnar í Fjarða­byggð.

Illa hefur gengið að ráða í stöður þeirra sem hætt hafa en sviðs­stjóri Framkvæmda­svið er ekki hættur þrátt fyrir að hafa sagt upp störfum fyrir áramót. „Starf hans og bygginga­fulltrúa voru auglýst og tvífaramlengdur frestur en engin sækir um. Hann er með áhaldahús og hafnir á sínu framfæri. Einn af þremur skip­stjórum Fjarða­byggðar­hafna sagði upp í haust og hætti fyrir áramót. Starfið hans hefur verið marg­auglýst og illa gengur að finna annan meðan öll önnur stóru hafnar­samlögin kafna í umsóknum,“ hefur Mannlíf eftir heimildar­manni. Bætti hann við: „Orðspor sveitar­félagsins hefur beðið mikinn skaða.“

Ekki náðist í Sunnu við vinnslu fréttarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp