Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Hvað ef amman ber sýkla í barnið?“

Ólafía Sigurjónsdóttir sálfræðingur.
Ólafía Sig­ur­jóns­dóttir sál­fræð­ingur.

Ólafía Sigurjóns­dóttir sálfræðingur við Kvíða­meðferðar­stöðina spyr í grein sem hún skrifar: Hvað ef ég skaða barnið mitt?

„Hvað ef barnið mitt fær ekki næga næringu? Hvað ef það hættir að anda? Hvað ef ég missi það í gólfið? Hvað ef amman ber sýkla í barnið? Hvað ef ég skaða barnið mitt?“

Segir að „svona hugsanir kannast flestir nýbakaðir foreldrar við. Enda er fátt eðlilegra en að hafa áhyggjur og vilja vernda það sem manni ofurkært. Kvíði og áhyggjur eru eðlilegar og það er líka eðlilegt að fá óþægilegar og ágengar hugsanir eins að sjá sig fyrir sér missa barnið fram að svölunum.“

Segir að „hjá flestum nýbökuðum foreldrum eru kvíðinn og áhyggjurnar tíma­bundnar og hafa engin áhrif á getu þeirra til að sinna barninu. En þegar kvíðinn, óþægilegar ágengar hugsanir og áráttu­hegðun sem snýr að því að vernda barnið er viðvarandi og farin að valda mikilli vanlíðan er um að ræða fæðingar­þráhyggju. Fæðingar­þráhyggja (e. postpartum OCD) er ein fjölmargra birtingar­mynda þráhyggju-áráttu­röskunar sem hrjáir tvo til þrjá af hverjum hundrað foreldrum. Fæðingar­þráhyggja einkennist af þráhugsunum, myndum eða hvötum sem sækja á fólk ítrekað og vekja kvíða, samviskubit, ógeð eða aðrar óþægilegar tilfinningar.“

Hún segir að „þessum hugsunum fylgir áráttu­hegðun sem er endur­tekin hegðun eða hugsun sem miðar að því að minnka óþægindin eða koma í veg fyrir skaða. Þráhugsanirnar snúast yfirleitt um barnið, t.d. hugsanir um að eitthvað gæti komið fyrir það, það veikst eða foreldrið gæti skaðað það ef óvarlega er farið. Árátturnar geta verið margskonar, til dæmis að umgangast barnið ofurvarlega, þvo og spritta hendur og heimilið, forðast umgengni við aðra, koma sér hjá því að sinna barninu t.d. bleyju­skiptum, reyna að ýta óþægilegum hugsunum frá og biðja aðra ítrekað um hughreystingu.“

Ólafía segir að lokum að „ef ekkert er að gert getur vandinn undið upp á sig og haft veruleg áhrif á foreldrið, samskiptin við aðra fjölskyldu­meðlimi og tengsla­myndun við barnið.

Fólk óttast líka að vera misskilið og dæmt af öðrum. Opin umræða og þekking á þessum vanda er mikilvæg ekki aðeins hjá fagfólki heldur fólki almennt. Skilningur aðstand­enda getur nefnilega breytt miklu, minnkað skömm og dregið úr vanlíðan og stuðlað að því að fólk leiti sér aðstoðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning