Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Halldóra vinnur með alzheimersjúkum: „Að vera öðruvísi er ekki slæmt, heldur gefur það lífinu lit“

„Að glíma við fordóma, þeir eru alls staðar. Að vera öðruvísi er ekki slæmt, heldur gefur það lífinu lit. Við megum ekki vera öll eins. Það er engin ástæða til þess að finna fyrir minni­máttarkennd þótt þú fallir ekki fullkomlega inn í hópinn. Þetta lærði ég meðal annars þegar ég flutti til Spánar,“ segir Halldóra Arnar­dóttir list­fræðingur í spjalli um lífið og listina.

Mannlíf hafði samband við Halldóru en hún hefur verið með mjög áhugaverð námskeið í Lista­háskólanum og á fleiri stöðum sem heita Listir og menning sem meðferð. Henni hefur meðal annars verið boðið að kynna verkefni sín við söfn eins og MoMA og MET í New York. Allt frá árinu 2008 hefur hún aðallega unnið með tauga­sérfræðingi að kanna hvort listir og menning gætu haft góð áhrif á alzheimersjúklinga.

Hefur sínar eigin minningar, grafnar í steina og huldar gróðri

„Það er svo margt sem mótar mann á lífs­leiðinni, jafnvel börnin manns,“ segir Halldóra. Halldóra er list­fræðingur, fædd og uppalin á Akureyri, gekk þar í mennta­skóla og stundaði fiðlunám í tónlistar­skólanum. Hún er dóttir Arnar Inga myndlistar­manns og Dýrleifar Bjarna­dóttur píanó­kennara. Menntuð í listfræði frá Bretlandi. Í háskólanum í Essex lærði hún listasögu og um leið bókmenntir og heimspeki. Ein bókanna sem hún þurfti að kaupa var Bíblían á ensku því lista­sagan er stútfull af tilvísunum í hana – það þurfti að fara rétt með á ensku. Í London lærði hún um sögu nútíma arkitektúrs og tók doktors­próf í University College London um ítalska hönnun og arkitektúr – grundar­vallar­spurningin var: Af hverju þekkjum við ítalska hönnun í verslunum áður en við lesum á vöru­miðann?

Halldóra segir að ástæðan fyrir því að hún stýri nú verkefni sem heitir Listir og menning sem meðferð eigi sér uppruna í arkitektúr.

„Maðurinn minn, Javier Sánchez Merina arkitekt, fékk það verkefni að teikna rannsóknar­setur fyrir Alzheimerstofnunina í Murcia á Spáni. Lóðin var fyrir utan borgina í fjalls­hlíð á móts við ávaxta- og grænmetis­ekrur. Ég var í teyminu og tók þátt í að finna þræði í umhverfinu sem hægt væri að spinna úr og í bygginguna sjálfa sem yrði hluti af starfseminni í meðferð lækna­teymisins og rann­sóknum tengdum alzheimer og heila­bilun yfirleitt.

Vegna þess hve lands­lagið hafði sterk séreinkenni þótti mikilvægt að fá tilfinningu fyrir fjallinu áður en hönnunar­ferlið hæfist. Farið var í langar göngu­ferðir um hlíðar fjallsins allt til þess að örva skynfærin: bera skynbragð á mismun­andi ilmtegundir, horfa á liti, hlusta á hljóðin sem bárust með vindinum, greina áferðir, klífa hlíðar og þræða þrönga troðninga. Svo virtist sem staðurinn hefði sínar eigin minningar, grafnar í steina og huldar gróðri og í rjóðrum. Saman mynduðu sítrónu- og furutré, lavender, rósmarín og timjan opin og björt rými sem hleyptu dulúðugri grænleitri birtu í gegnum greinar sínar og lauf.“

Listir og menning sem meðferð

Halldóra segir að verkefnið Listir og menning sem meðferð hafi orðið til út frá þessari hönnunar­vinnu. „Forstöðu­kona minnis­móttökunnar, tauga­sérfræðingurinn Carmen Antúnez, var tilbúin til að prófa og athuga hvort listir og menning gætu haft þau áhrif á sjúklingana að lífsgæði þeirra bötnuðu; að brosið birtist oftar á andlitum þeirra, þeir yrðu fáanlegir til að klæða sig og borða sjálfir. Staðreyndin er sú að ef þér líður vel er allt einfaldara og auðveldara að takast á við lífið – hvort sem það á við um fólkið sem þjáist af alzheimer eða aðstand­endur þess,“ segir Halldóra.

Hún segir enn fremur að þó svo að alzheimersjúkdómurinn einkennist af minnis­skerðingu, skertu skipulagi til athafna og máltruflun sé mikilvægt að koma fram af virðingu við þá sem eru haldnir honum. Alltof oft er litið á þá sem sjúklinga sem ófærir séu um að sýna getu sína eða taka þátt í samfélaginu. Því má ekki gleyma að þrátt fyrir minnis­tapið býr margt í mannssálinni sem enn er óskaddað og gerir fólk með alzheimer að verðugum þjóðfélags­þegnum.

„Listir og menning sem meðferð fékk strax mikinn skilning hjá lækna­teyminu og ekki síður hjá lista­fólki. Listamenn búa margir yfir einstakri færni til að ná til tilfinningalífs fólks og fá hjá því viðbrögð. Eins og Carmen Antúnez skrifaði í bókina Listir og menning sem meðferð – íslensk söfn og Alzheimer (Háskóla­útgáfan 2015), er heilinn alveg einstakur vöðvi og býr yfir hæfi­leikum til margvíslegrar listsköpunar. Listin er þáttur í lífi hvers manns. Bæði hæfi­leikinn til að búa hana til og tilfinningin fyrir henni. Hvernig hún örvar og tengist tilfinninga­svæði heilans er veiga­mikið verkfæri til að tengjast tilfinningunum. Með öðrum orðum, til að tengjast tilfinninga­minninu, sem er aflið sem gerir okkur kleift að læra.“

Nota nærumhverfið sem örvun

Aðspurð hvort að hún geti útskýrt námskeiðið betur, segir Halldóra að: „námskeiðin séu mismun­andi, allt frá því að þjálfa verkefna­stjóra í fræðslu í söfnum, list­kennslu­nemendur í að nýta listform sín fyrir ólíka samfélags­hópa til opinna námskeiða í Endur­menntun Háskóla Íslands. Öll beinast þau að því að nota nærumhverfið sem örvun, ná tengingu við tilfinninga­minnið í gegnum hin ólíku listform og nálgast spurningar á fordóma­lausan hátt. Þá er ekki átt við að spyrja hvernig hluturinn sé á litinn eða í laginu, heldur miklu frekar leita eftir félags­legum tengingum. Hvernig fékkstu þetta málverk? Þekktirðu málarann? Hver gaf þér askinn sem er á hillunni – núna borðar enginn úr slíku íláti.

Þessar spurningar eru einfaldar í fljótu bragði, en þetta eru allt spurningar sem búa til tengingar. Það skiptir ekki máli hvort þær eru „réttar“ í minningunni eða ekki. Mestu máli skiptir að örva hugsunina.

Um þetta ræðum við á námskeiðunum – á mjög ólíkan hátt og allt eftir viðfangs­efninu. Við vinnum út frá því jákvæða, styrk­leikum manneskjunnar en ekki veik­leikum. Það er mjög mikilvægt,“ segir Halldóra.

Ferðaðist um Ítalíu í heilt ár

Ásamt því að halda úti námskeiðum er Halldóra að skrifa bók um arkitektinn Skarphéðin Jóhannsson. Hann teiknaði meðal annars Mennta­skólann við Hamrahlíð, Mjólkurbú Flóamanna á Selfossi og Hagaskóla. Áður skrifaði hún bók um konu hans, Kristínu Guðmunds­dóttur, okkar fyrsta háskóla­menntaða innan­húss­arkitekt. Halldóra segir að hún hafi verið svo lánsöm að hafa aðgang að einka­skjölum Skarphéðins, þar á meðal hundruðum einka­bréfa og teikninga. Eftir nám hans í Kaupmanna­höfn ferðaðist hann um Ítalíu í heilt ár til að afla sér þekkingar á byggingar­list þeirrar merku þjóðar, sögu og lífs­háttum og skrifaði um það sem fyrir augu bar heim til fjöl­skyldu og vina.

„Þetta er stór­merkilegur lestur og gefur innsýn í hugarheim arkitektsins, reynslu sem var einstök á þessum tíma fyrir Íslending og sem hann vann úr þegar hann kom heim árið 1952 og stofnaði teiknistofu.“

Listir opna fyrir tilfinningaþroska

Halldóra telur listnám vera mikilvægt fyrir alla og þeir sem njóta þess búa að því allt sitt líf. Listir opna fyrir tilfinninga­þroska. Þær örva leikni til að virða fyrir sér hlutina án fordóma og auka getu til að takast á við breytingar. Listræn tjáning og hugmynda­flug fær að þroskast ef menn fá frelsi til að hugsa. Það leiðir til fram­þróunar samfélagsins.

„Það er enginn að segja að allir ættu að vera listamenn. En það er ekki síður skemmtilegt að skoða mannkyns­söguna í gegnum myndlist og arkitektúr heldur en í gegnum sögubækur. Það eru margar hliðar á hverju máli – allt eftir því hver segir frá og hvernig. Listir kenna okkur að hlusta á aðra og bregðast við af samkennd.“

Finnst þér að það mætti efla kennslu á sviði listar og menningar á Íslandi?

„Tvímæla­laust! Og ég vil þakka þér fyrir spurninguna því við erum að opna nýja námslínu í List­kennslu­deild Lista­háskólans haustið 2022, að öllu óbreyttu. Námslínan List­sköpun og samvinna – Leiðir að virkni og velferð er afrakstur tveggja ára vinnu með fimm evrópskum háskólum frá Spáni, Portúgal, Finnlandi, Bretlandi og Þýska­landi á sviði arkitektúrs, mynd­listar, samfélags­lista og list­meðferðar. Námið er sniðið að lista­mönnum sem hafa áhuga á að styrkja félags­lega þátttöku, virkni og vellíðan einstaklinga í sínum störfum. Markmiðið er að þróa nýjar leiðir í þver­faglegri samvinnu lista­manna, heil­brigðis- og skóla­fólks í störfum þeirra við þær síbreytilegu aðstæður og fjöl­breytta flóru einstaklinga sem það vinnur með. Í náminu verður unnið með möguleika ólíkra list­greina til að tengja saman einstaklinga, stuðla að virkni og vellíðan, og efla sjálfs­traust þeirra sem eiga á hættu að verða jaðar­settir.

Þessi námslína verður enn fremur kynnt á fyrir­hugaðri fundaröð Reykja­víkur­akademíunnar, Öllum til heilla, frá febrúar­mánuði og fram í júní. Reykja­víkur­akademían vill með henni efla samtalið um samfélags- og þátttöku­listir, hugmynda­fræði þeirra og gildi fyrir samfélagið.

Það má alltaf efla meðvitund manna um vægi lista og menningar, ekki bara á einstaklinga heldur ekki síður stjórn­valda. Listir eru viss heimspeki, þær fjalla um það hvernig við lifum í samfélagi við aðra og umhverfið.“

Teikna upp minningar

Hverjir hafa verið þínir helstu sigrar?

„Að auðga mátt listar og menningar sem meðferðar fyrir hina ólíku samfélags­hópa. Listir og menning sem meðferð hefur fengið til sín heims­fræga listamenn til að vinna með skjólstæðingunum, og má þar nefna bandaríska vídeó-lista­manninn Bill Viola og spænska köku­meistarann Paco Torreblanca. Með þeirra þátttöku bjuggum við til myndbönd þar sem tilfinningar eru tjáðar án orða og nýja Murcia-tertu sem er verðug þess að vera á hverju veislu­borði.

Á Íslandi vorum við svo lánsöm að vinna með Þórarni Eldjárn rithöfundi, Jóni Snædal, forstöðu­manni minnis­móttökunnar á Landakoti, og Alzheimersamtökunum. Þórarinn las upp smásöguna sína Hvaðefsaga og fengum við nemendur úr Myndlistar­skólanum í Reykjavík til að teikna upp minningar skjólstæðinganna sem spruttu upp út frá því að hlusta á söguna. Uppskeru­hátíð var haldin í Þjóðar­bókhlöðunni þar sem sýndar voru teikningar þeirra og smásögur skjólstæðinganna við þær.

En það er ekki þar með öllu lokið – nú eru fimm söfn á höfuð­borgar­svæðinu og á Akureyri sem bjóða upp á sérsniðnar dagskrár fyrir fólk sem þjáist af alzheimer, aðstand­endur þeirra og dagþjálfanir. Þau eru Listasafn Íslands, Þjóð­minjasafnið, Borgar­sögusafn Reykja­víkur, Listasafn Reykja­víkur og Lista­safnið á Akureyri. Áhuginn eykst og sífellt fleiri söfn og dagþjálfanir vilja taka þátt í netkerfinu!

Söfn eins og MoMA og MET í New York hafa boðið mér að koma til að kynna verkefnið á ráðstefnum og fyrir safna­fólkinu, sem er sigur út af fyrir sig. Við vinnum öll saman – alzheimersjúkdómurinn er alls staðar í heiminum og við verðum að læra af hvort öðru til að auka lífsgæði þeirra sem af honum þjást.“

Viðtalið birtist fyrst 3. febrúar 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið