Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

„Eitraður“ samstarfsmaður: „Ef þú tekur ekki slaginn ertu í raun að viðhalda slæmu ástandi“

Samskipta­vandi er ekki nýtt vandamál, en hann hefur verið meira í umræðunni nú þegar stóraukin áhersla er lögð á teymis­vinnu.En hvað er átt við þegar talað er um „eitraða“ samstarfs­menn? Flestir kannast við hugtakið og telja sig jafnvel þekkja einn eða tvo. Með þessu orðalagi er tekið mjög sterkt til orða, en oftast er þessi erfiði samstarfs­maður ósköp venjuleg manneskja sem hefur af einhverjum ástæðum tileinkað sér hegðun sem kemur illa niður á samstarfs­fólki. Stundum þróast þessi framkoma yfir lengri tíma vegna samspils margra þátta, svo sem fyrirtækja­menningar, stjórnunar, álags, stöðu í fyrir­tækinu, persónulegra aðstæðna og skap­gerðar einstaklingsins.

Í grein Harvard Business Review er talað um algengustu og eitruðustu hegðunina:

  • Baktala, gagnrýna, kenna öðrum um
  • Slúðra, dreifa sögu­sögnum
  • Samþykkja á fundum en fylgja ekki eftir
  • Safna og sitja á upplýsingum
  • Grafa undan öðrum
  • Taka eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni teymis eða fyrir­tækis

Til umhugsunar: 

Er eitthvað sem fyrir­tækin geta gert til að sporna við svona hegðun?

Væri hægt að nýta þessi atriði við gerð samskipta­reglna, í fræðslu og við nýliða­kynningar?

Eru stjórn­endur meðvitaðir um hve mikil áhrif þessi hegðun hefur á starfs­fólk og þar með velgengni fyrir­tækisins?

Erum við sjálf sek um svona hegðun í hugsunar­leysi eða vegna mikils álags?

Í greininni segir að tengsl starfs­fólks innan teyma séu mikil­vægasti einstaki þátturinn að baki velgengni þeirra. Ekki þarf nema einn starfs­mann til að skemma fyrir heildinni. Hún nefnir nokkur dæmi um eitraða hegðun í teymum:

Óþarfa dramatík og truflun.
Jákvæð orka og sköpunar­kraftur sogast úr samstarfinu. Starfs­menn eyða dýrmætum tíma í að verja sig í stað þess að skapa, taka áhættu og ræða opinskátt um það sem kemur upp í hugann.

„Verð­felling“ teymis/verkefna.
Slæm hegðun starfs­manns getur litað allt teymið og verkefni þess og haft neikvæð áhrif út fyrir teymið. Aðrir starfs­menn og viðskipta­vinir telja ólíklegra að hópur sem vinnur illa saman geti skilað sama árangri og teymi sem vinnur í takt.

Grafið undan gildum leið­togans og fyrir­tækisins.
Það skapar tortryggni þegar fyrirtæki halda á lofti gildum og venjum en sumir komast upp með að virða þessi tilmæli að vettugi.

Skemmir liðsheild.
Aðrir starfs­menn teymisins byrja að endur­spegla þessa slæmu hegðun, koma fram við starfs­manninn af virðingar­leysi, stunda baktjalda­makk og halda upplýsingum frá honum.

Í greininni kemur fram að starfs­menn telji sig síður geta haft áhrif á hegðun þegar um jafningja er að ræða. Sumir neyðist til að hætta í teyminu eða segja upp ef ástandið er óbærilegt.

Ef þú ert stjórn­andi teymis þar sem svona aðstæður hafa skapast er ljóst hvað þarf að gera. Það þarf að viðurkenna hvað er að gerast hjá hópnum og fara fram á breytta hegðun. Það er ekki hægt að þola framferði sem dregur alla aðra niður, jafnvel þó að sá sem eitrar út frá sér hafi marga kosti, skili til dæmis góðum afköstum, hafi tækni­þekkingu, skarpa greind eða verðmæta reynslu.

Hér eru fjögur skref sem þú getur tekið til að takast á við eitraða hegðun:

  • Ræddu við viðkomandi á opinskáan og heiðar­legan máta. Ef þú tekur ekki slaginn ertu í raun að viðhalda slæmu ástandi. Ekki er hægt að reikna með að einstaklingur vakni einn góðan veðurdag og breyti hegðun sinni án hvatningar. Láttu vita hvaða áhrif hegðunin hefur á þig og fáðu endurgjöf á þína eigin hegðun. Stundum áttar fólk sig ekki á hve mikil áhrif það hefur með breytni sinni. Þeir sem vinna í teymum þar sem eitruð samskipti eiga sér stað eru mun ólíklegri til að veita öðrum hreinskilna endurgjöf en þar sem samskiptin eru góð.
  • Gættu að eigin hegðun og forðastu að leika sama leik. Vertu fyrirmynd fyrir aðra í teyminu og einbeittu þér að markmiðum vinnunnar. Setjið fram sameiginleg viðmið sem styðja samvinnu og opin tjáskipti. Þeir sem eru í eitruðum teymum eru ólíklegri til að hafa áhuga á velgengni annarra í hópnum og eru síður líklegir til að vinna að og viðhalda trausti innan hópsins.
  • Talaðu við yfirmann þinn. Leggðu til að haldinn verði fundur til að stilla upp viðmiðum fyrir teymið og ræða erfiða hegðun og ágreining. Fundurinn ætti ekki að vera tylliástæða til að taka tiltekinn starfs­mann á teppið heldur ættu að fara fram opinskáar umræður um ásættanlega hegðun og ábyrgð ásamt því að kynna ólík sjónarmið innan hópsins. Í eitruðum teymum er almennt ólíklegra að starfs­menn hafi viðmið um hegðun eða taki strax á óviðeigandi hegðun.
  • Að lokum, passaðu upp á þig. Ekki láta eitraða hegðun annarra hafa áhrif á heilsu þína. Gerðu það sem þú getur en gefðu frá þér það sem þú getur ekki haft áhrif á og gerðu breytingar ef þú þarft. Leitaðu ráða hjá mannauðs­stjóra eða öðrum sem þú treystir. Ef ekkert gengur þarftu að íhuga hvort þú þarft að hugsa þér til hreyfings.

Það er ljóst að fyrirtæki skaðast af eitruðum samskiptum. Oft verður vandinn svo þungbær að reynt er að takast á við hann en það krefst orku, hugrekkis og þraut­seigju að endur­byggja sambönd og þróa nýjar venjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið