Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Nauðgari gengur laus – Þolandi varar við: „Hann gæti setið við hliðina á þér í brekkusöngnum“

„Kannski ertu að fara á Þjóðhátíð með polla­buxur í farte­skinu til að haldast þurr á rassinum í brekku­söngnum. Kannski hlakkar þú til að sjá leðjuna fljúga í mýrar­boltanum á Bolungarvík eða neistana á Neskaups­stað. Hvað sem þú kýst að gera vona ég innilega að þú skemmtir þér vel. Ég vona líka að þú verðir ekki á vegi mannsins sem nauðgaði mér.“

Svo hefst pistill sem birtist á vef Stundarinnar þar sem höfundur er sagður þolandi 1.639 í gögnum Neyðar­móttökunnar. Konan segist ein margra sem ekkert réttlæti hefur fengið í réttar­kerfinu. Nauðgari hennar var dæmdur sekur en fékk skilorð. Hann gengur því laus og líklegur til að vera á farandsfæti um Verslunar­manna­helgina.

„Gerandi minn var fundinn sekur, bæði í héraðs­dómi og Lands­rétti, og dæmdur í þriggja ára fangelsi. Í báðum tilvikum var dómur hans hins vegar skilorðs­bundinn að fullu, sem þýðir að hann mun aldrei verja neinum tíma bakvið lás og slá. Þrátt fyrir að vera nýlega tvídæmdur gæti hann því setið við hliðina á þér í brekku­söngnum, eða staðið fyrir aftan þig í klósett­röðinni á Síldar­ævintýrinu. Rétt eins og þú er hann eflaust að skipuleggja verslunar­manna­helgina sína, því hann er alveg jafn frjáls og hann var áður en hann var fundinn sekur um eitt svívirðilegasta brotið í mannlegu samfélagi,“ segir konan.

Hún lýsir nauðgun sinni í smáatriðum og dregur ekkert undan. Að lokum biðlar hún til þjóðarinnar að hugsa sinn gang hvað kynferðis­brot varðar. „Kæra þjóð, ég vona að þið njótið ykkar um komandi helgi, sem er því miður þekkt fyrir fjölda kynferðis­brota. Ef einhver í lífi þínu verður fyrir slíku ofbeldi, og telur ekki þess virði að kæra, vona ég að þú sýnir því skilning og áttir þig á hvaða hlutverki réttar­kerfið gegnir í að viðhalda vanda­málinu. Ég vona líka að þér finnist við öll eiga betra skilið. Fyrsta skrefið í átt til breytinga er ákvörðun þín um að þú viljir búa í samfélagi þar sem réttar­kerfið tekur skýra afstöðu gegn ofbeldi. Ekki eftirláta þolendum einum þá baráttu. Það er óraunhæft að ætlast til að þau, sem kerfið brýtur grófast gegn, lagfæri það líka.“

Hér má lesa pistilinn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið